Skuggi Baldvins hjá Samherja í Namibíu

Hlutverk Baldvins Þor­steins­sonar, sonar Þor­steins Más Bald­vins­sonar, hjá útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja, hefur ekki legið alveg ljóst fyrir á liðnum árum. Hann hefur borið hina ýmsu starfstitla og jafn­vel stýrt félagi sem Samherji hefur keypt en á sama tíma alltaf líka verið með putt­ana í útgerð­inni á bak við tjöldin. Þetta sýna rann­sókn­ar­gögnin í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu þar sem nafn Baldvins kemur það mikið fyrir að ætla má að hann sé eins konar aðstoð­ar­for­stjóri föður síns hjá Samherja.

Eftir nefndarfund Alþingis
Eftir nefnd­ar­fund Alþingis Baldvin Þor­steins­son sagði seðla­banka­stjóra að hafa þá „sóma­kennd“ að „drulla sér í burtu“ vorið 2019, á sama tíma og Samherji bar fé á stjórn­mála- og emb­ætt­is­menn í Namibíu. Mynd: Hlíf Una

„Er búið að gefa út kvót­ann í Namibíu?“ spurði Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, í tölvu­pósti til fram­kvæmda­stjór­ans í namibískum dótt­ur­fé­lögum Samherja þann 4. ágúst 2018. Um er að ræða síð­ustu tölvu­póst­sam­skiptin frá Baldvini Þor­steins­syni sem er að finna í þeim rann­sókn­ar­gögnum sem sak­born­ingar í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu hafa verið spurðir út í.

Tölvu­póst­arnir eru frá tæp­lega tíu ára tíma­bili, 2010 til hausts­ins 2019, skömmu áður en greint var frá Namib­íu­mál­inu í fjöl­miðlum. Gögnin sýna tals­verða aðkomu Baldvins Þor­steins­sonar að skipu­lagn­ingu veiða Samherja í Namibíu yfir margra ára tíma­bil.  

Baldvin er í dag orð­inn annar stærsti eig­andi Samherja, ásamt Kötlu systur sinni, eftir að Þor­steinn Már Bald­vins­son og Kristján Vil­helms­son, frændi …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ný Samherjaskjöl

FréttirNý Samherjaskjöl

KPMG breytti skýrslu um völd Þor­steins Más vegna „óánægju“ hans

End­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið KPMG breytti skýrslu sinni um stjórn­endastrúktúr Sam­herj­a­sam­stæð­unnar eftir að Þor­steinn Már Bald­vins­son lýsti yfir óánægju með drög að skýrsl­unni. Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara hefur yfir­heyrt starfs­mann KPMG, sem sá um skýrslu­gerð­ina, sem vitni og er ljóst að ákæru­valdið hefur mik­inn áhuga á valdsviði Þor­steins Más innan Samherja.
AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Jón Óttar sagð­ist ekki skyld­ugur til að „fela þetta“ fyrir Samherja í Namibíu

Eitt af því sem Jón Óttar Ólafsson, ráð­gjafi Samherja, gerði ítrekað fyrir útgerð­ar­fé­lagið var að reyna að stuðla að því að mútu­greiðsl­urnar til ráða­mann­anna í Namibíu færu leynt. Jón Óttar sagð­ist ekki bera skylda til að fela þessar greiðslur en hélt samt áfram að gera það í rúm þrjú ár eftir að hann hóf störf hjá Samherja í Namibíu.

9 mín. lestur

AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Banka­stjóri og stjórn­ar­maður Íslands­banka liðk­uðu til fyrir við­skiptum Samherja í Namibíu

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, fund­aði með stjórn­ar­manni og banka­stjóra Íslands­banka, Birnu Ein­ars­dóttur, um aðstoð við að stunda fisk­veiðar í Namibíu. Fund­ur­inn leiddi til þess að Samherji fékk með­mæla­bréf sem sent var til Bernhard Esau sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Birna Ein­ars­dóttir segir að hún hafi ein­ungis verið að aðstoða við­skipta­vin bank­ans og að hún hafi aldrei vitað til hvers fund­ur­inn leiddi.

11 mín. lestur

AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Ný Sam­herj­a­skjöl: „Þarf þetta allt að vera til í póstum milli manna?“

Ný gögn sem eru undir í rann­sóknum hér­aðs­sak­sókn­ara og namibískra yfir­valda varpa ljósi á hversu víð­tæk þekk­ing var um mútu­greiðslur og hátt­semi Samherja í Namibíu innan útgerð­ar­ris­ans. Frjáls­lega var talað um mútu­greiðslur og hót­anir í skrif­legum sam­skiptum lyk­il­stjórn­enda. Þor­steinn Már Bald­vins­son fékk stöðugar upp­lýs­ingar um gang mála.

29 mín. lestur

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár