Ekki „skatt­fælnir“ Þor­steinn Már Bald­vins­son hélt því fram fyrr á árinu að Samherji væri ekki „skatt­fælið“ fyr­ir­tæki. Mynd: Haraldur Jónasson/Hari

Þorsteinn Már: „Við höfum ekki verið neitt skattfælnir“

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, sagði í febr­úar að Samherji væri ekki „skatt­fælið“ fyr­ir­tæki. Í Sam­herj­a­sköl­unum koma hins vegar fram upp­lýs­ingar um stór­fellda notkun útgerð­ar­fé­lags­ins á skatta­skjólum hátt í ára­tug.

Notkun Samherja á skatta­skjólum eins og Marshall-eyjum og Máritíus í við­skiptum sínum eru hluti af þeim nýju tíð­indum sem koma fram í Sam­herj­a­skjöl­unum. Stundin fjallar um skjölin í sam­vinnu við Wikileaks, Kveik og Al Jazeera. 

Hingað til hafa ekki komið fram neinar upp­lýs­ingar sem sýna að Samherji not­ist við ríki sem í dag eru skil­greind sem skatta­skjól í við­skiptum sínum. Samherji hefur vissu­lega not­ast við Kýpur í meira en ára­tug í við­skiptum sínum og Mið­jarð­ar­hafs­eyjan er ekki lengur skil­greind sem skatta­skjól þó hún hafi verið það á sínum. Kýpur veitir hins vegar skjól fyrir sköttum og veru­legt skatta­hag­ræði fyrir eign­ar­halds­fé­lög eins og þau sem Samherji notar, meðal ann­ars Esju Seafood á Kýpur. 

Samherji: Kýpur ekki skattaskjól

Þor­steinn Már Bald­vins­son og Samherji hafa í gegnum tíð­ina and­mælt því þegar fyr­ir­tækið hefur verið sagt stunda við­skipti í skatta­skjólum. Eftir að DV fjall­aði um við­skipti Samherja á Kýpur í tengslum við veiðar fyr­ir­tæk­is­ins í Marokkó og Márit­aníu árið 2012 birti Samherji frétt á heima­síðu sinni þar sem félagið neit­aði því að Kýpur væri skatta­skjól.

Formlega séð er Kýpur ekki skatta­skjól, meðal ann­ars út frá skil­grein­ingum Evr­ópu­sam­bands­ins á því hvaða ríki eru skatta­skjól, en eyjan hefur stundum verið sögð vera skatta­skjól í gegnum tíð­ina. Enginn deilir hins vegar um að það getur falið í sér veru­legt skatta­hag­ræði að nota eign­ar­halds­fé­lög á Kýpur. 

Þegar þetta svar kom frá Samherja hafði félagið not­ast við eign­ar­halds­fé­lag á Marshall-eyjum, Cape Cod FS, til að greiða út laun starfs­manna sinna í Afríku í meira en eitt ár.

En auð­vitað er það hvorki rangt né mót­sögn að Samherji hafi varið sig með því að Kýpur sé ekki skatta­skjól á sama tíma og félagið milli­færði millj­arða króna til Marshall-eyja til að greiða laun starfs­manna sinna í Afríku. 

Skattavandræði sjómanna

Bent skal á það einnig að starfs­menn Samherja í Afríku, sem og starfs­menn

Sjóla­skipa þegar Katla Seafood var í eigu þess félags, hafa lent í vand­ræðum í gegnum tíð­ina  út af því að þeir greiddu ekki skatta af launum sínum. Í ljós kom að ein­hverjir starfs­menn töldu að Sjóla­skip og Samherji greiddu skatta af launum þeirra á meðan útgerð­irnar litu svo á að starfs­menn­irnir væru verk­takar.

Nið­ur­staðan var hins vegar að engir skattar voru greiddir af launum margra starfs­manna útgerð­anna, meðal ann­ars tuga íslenska sjó­manna sem svo voru dæmdir fyrir skatta­laga­brot á Íslandi og gert að greiða skatt­inn til baka með álagi. Ein­hverjir af sjó­mönn­unum hafa orðið gjald­þrota vegna þessa. Þá skal einnig á það bent að fyri eig­endur Kötlu Seafood, systk­inin í Sjóla­skipum, hafa verið ákærð fyrir stór­felld skatta­laga­brot vegna notk­unar á Tortóla­fé­lögum í tengsum við 

Ein af spurn­ing­unum sem kviknar í ljósi upp­lýsa Sam­herj­a­skjal­anna er hvort og hvernig þeir starfs­menn Samherja sem fengu greidd laun frá Cape Cod FS hafi gefið þessi laun upp til skatts á Íslandi eða ekki. Einn fyrr­ver­andi starfs­maður Samherja í Namibíu, sem meðal ann­ars fékk greidd laun frá Cape Cod FS, segir alltaf hafa greitt skatta á Íslandi af þeim en hvort þetta á við um alla íslensku starfs­menn­ina liggur vit­an­lega ekki fyrir. 

Þorsteinn: Skattað eftir afkomu 

Samherji á líka í svo einnig miklum inn­byrðis við­skiptum við sín eigin fyr­ir­tæki víða um heima í gegnum eign­ar­halds­fé­lög sín á Kýpur og rekstr­ar­nið­ur­staða félag­anna er ekki góð og eru skatt­greiðsl­urnar á Kýpur eftir því. Eins og fjallað var um í Stund­inni í apríl eftir að blaðið hafði gengið aðgang að árs­reikn­ingum tveggja Sam­herj­a­fé­laga á Kýpur, Esju Shipping Limited og Esju Seafood Limited. 

Á árunum 2013 og 2014 borg­uðu þessi tvö félög sam­tals 22 millj­ónir króna í skatt á Kýpur en voru á sama tíma með tekjur upp á meira en 12 millj­arða króna. Félögin voru og eru í eigu íslensks eign­ar­halds­fé­lags sem heitir Polaris Seafood ehf. 

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, sagði þá að skatt­greiðslur fyr­ir­tækj­anna á Kýpur séu byggðar á þar­lendum lögum og í sam­ræmi við þau.  „Það er skattað í sam­ræmi við afkomu þess­ara fyri­tækja á hverjum tíma. Það hafa verið greiddir allir skattar og gjöld á þessum stöðum, hvort sem það er Kýpur eða ann­ars staðar. Það er bara ein­falt mál og þessir skattar eru mis­miklir á hverjum tíma eftir afkomu.“ 

Sntyri­leg að nota KýpurBaldvin Þor­steins­son fjall­aði um það í tölvu­pósti fyrir ára­tug hversu „snyrti­legt“ það væri að nota eign­ar­halds­fé­lög á Kýpur.

Tölvupóstur Baldvins um skattahagræði

Í febr­úar birti Stundin umfjöllun um tölvu­póst sem Baldvin Þor­steins­son, sonur

Þor­steins Más Bald­vins­sonar og starfs­maður Kötlu Seafood, skrif­aði til sam­starfs­manna sinna hjá Samherja árið 2009 þar sem hann var að ræða um skatta­legt hag­ræði af því að nota félög á Kýpur í við­skiptum Samherja.

Tekið skal fram að umræða Baldvins sner­ist um starf­semi Samherja í Máritíus og Marokkó, ekki í Namibíu, þar sem Samherji hafði á þessum tíma ekki hafið veiðar í Namibíu – það gerð­ist ekki fyrr en árið 2012. En umræðu­efnið sner­ist um Afr­íku­veiðar Samherja og til­högun þeirra. 

„Til­gang­ur­inn er eft­ir­far­andi: Að búa til hagnað innan sölu­fyr­ir­tæk­is­ins þar sem eng­inn skattur er á hagnað fyr­ir­tæk­is­ins.“

Í tölvu­póst­inum sagði Baldvin meðal ann­ars: „Til­gang­ur­inn er eft­ir­far­andi: Að búa til hagnað innan sölu­fyr­ir­tæk­is­ins þar sem eng­inn skattur er á hagnað fyr­ir­tæk­is­ins. Við teljum Kýpur vera rétta landið. Með því að búa til hagnað innan sölu­fyr­ir­tæk­is­ins Kötlu Seafood getum við lækkað skipta­hlut sjó­manna og stjórnað betur á hvaða verðum við myndum gera upp. […] Með því að draga úr hagn­aði þar og láta hagn­að­inn mynd­ast hjá sölu­fyr­ir­tæk­inu þá tæk­ist okkur að auka hagnað heild­ar­innar. Þetta teljum við nokkuð snyrti­lega leið til að draga úr skatt­greiðslum.“

Þessi tölvu­póstur Baldvins er í ágætu sam­ræmi við þær upp­lýs­ingar sem koma fram í árs­reikn­ingum Esju Shipping og Esju Seafood. Samherji getur stýrt því hvar hagn­að­ur­inn af við­skiptum félags­ins mynd­ast þar sem félagið á í svo miklum inn­byrðis við­skiptum við sín eigin félög víða um lönd.  

Var „snyrtilegt“ fyrir Samherja að nota Kýpur?

Í sam­tali við Stundina um þennan tölvu­póst sagði Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, meðal ann­ars í síma­sam­tali við blaða­manna Stund­ar­innar fyrr á árinu að Samherji hefði í gegnum tíð­ina ekki verið „skatt­fælið“ fyr­ir­tæki.  

Blaða­maður: „Annað sem hann [Baldvin Þor­steins­son] segir í þessum tölvu­pósti er að það sé snyrti­legt í skatta­legum skiln­ingi að nota eign­ar­halds­fé­lög á Kýpur.“

ÞMB: „Ég veit ekki hvað er átt við með því.“

Blaða­maður: „Þannig er lýs­ingin í tölvu­póst­inum, snyrti­legt.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár