Færeyingar náðu betri árangri en Íslendingar í Tókýó og vilja keppa undir eigin fána

Leiðtogi fær­eysku lands­stjórn­ar­innar ítrek­aði í vik­unni vilja Fær­ey­inga til þess að fá að keppa undir sínum eigin fána, Merkinu, á Ólymp­íu­leikum. Fær­eyskur ræð­ari hafn­aði í fjórða sæti á leik­unum í Tókýó, en keppti fyrir hönd Dan­merkur.

Færeyingar vilja fá aðild að Alþjóða Ólympíunefndinni, en sú barátta hefur ekki skilað árangri.
Fær­ey­ingar vilja fá aðild að Alþjóða Ólymp­íu­nefnd­inni, en sú bar­átta hefur ekki skilað árangri. Mynd: Úr safni

Bárður á Steig Nielsen, lög­maður Færeyja, sendi í vik­unni út yfir­lýs­ingu um vilja Fær­ey­inga til þess að fá að taka þátt undir sínum eigin fána á Ólymp­íu­leik­unum. Færeyjar eru ekki sjálf­stæður með­limur Alþjóða Ólymp­íu­nefnd­ar­innar og keppa fær­eyskir íþrótta­menn því undir dönskum fána.

Í yfir­lýs­ing­unni, sem lög­mað­ur­inn birti á ensku á vef fær­eysku lands­stjórn­ar­innar fyrr í vik­unni, segir að vilji Fær­ey­inga til þess að öðl­ast aðild að Alþjóða Ólymp­íu­nefnd­inni sé skýr, en fær­eysk yfir­völd hafa á und­an­förnum árum sóst eftir sjálf­stæðri aðild að nefnd­inni, án árang­urs.

Bárður bendir á að fær­eyskir kepp­endur hafi tekið þátt í síð­ustu fjórum Ólymp­íu­leikum, undir fána Dan­merkur.

Á hinum nýaf­stöðnu leikum í Tókýó hreppti fær­eyski ræð­ar­inn Sverri Sandberg Nielsen meira að segja fjórða sætið í ein­menn­ings­róðri fyrir hönd Dan­merkur, sem er betri árangur en nokkur íslenskur kepp­andi náði í sinni keppn­is­grein á leik­unum.

Auk þess var einn leik­maður í silf­ur­liði Dana í hand­bolta karla fær­eyskur, en sá hefur valið að spila fyrir Danmörku.

„Frá Færeyjum koma nú reglu­lega íþrótta­menn sem hafa getu til að keppa á Ólymp­íu­leik­unum, sem ljáir þeim rökum vægi að þeir ættu að fá að vera full­trúar heima­lands síns á Ólymp­íu­leik­unum,“ segir í yfir­lýs­ingu Bárðar á Steig Nielsen, sem segir að Alþjóða Ólymp­íu­nefndin þurfi að end­ur­skoða stefnu sína og leyfa Fær­ey­ingum að halda flaggi sínu á lofti á Ólymp­íu­leik­unum.

Eru með í Ólympíuhreyfingu fatlaðra

Bárður bendir á að Færeyjar séu stofn­með­limur í Ólymp­íu­hreyf­ingu fatl­aðra og hafi tekið þátt í hverjum ein­ustu Ólymp­íu­leikum fatl­aðra frá 1984 með góðum árangri, auk þess sem eyj­arnar hafi fengið sjálf­stæða aðild að stærstu sam­böndum knatt­spyrnu­heims­ins, UEFA og FIFA, í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins.

„Það er kom­inn tími til þess að fær­eyski fán­inn fái að birt­ast á Ólymp­íu­leik­unum,“ segir Bárður í yfir­lýs­ing­unni, en bar­átta Færeyja fyrir því að fá að keppa undir eigin fána var form­lega sett af stað árið 2018 og vakti mikla athygli.

Í frétt BBC frá þeim tíma sagði að dönsk íþrótta­yf­ir­völd og ólymp­íu­nefndir ann­arra Norð­ur­landa stæðu að fullu að baki þessum vilja Fær­ey­inga og tekið var fram að ekk­ert fjár­magn kæmi frá Danmörku inn í fær­eyskt íþrótta­líf.

Alþjóða Ólymp­íu­nefndin varð þó ekki við óskum Fær­ey­inga fyrir leik­ana í Tókýó og hefur í því sam­bandi verið vísað til reglna í Ólymp­íu­sátt­mál­anum sem koma í veg fyrir að lönd önnur en þau sem við­ur­kennd eru sem sjálf­stæð af alþjóða­sam­fé­lag­inu verði veitt aðild að Alþjóða Ólymp­íu­nefnd­inni.

Dæmi eru þó um að lönd eða land­svæði sem ekki eru sjálf­stæð séu með aðild að Alþjóða Ólymp­íu­nefnd­inni.

Þar má til dæmis nefna Púertó Ríkó, sem heyrir undir Banda­ríkin og Arúba, sem er hluti hol­lenska kon­ungs­dæm­is­ins, auk þess sem Hong Kong er með sjálf­stæða aðild að nefnd­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár