Færeyskur ráðherra vill ekki fara í bólusetningu fyrr en langtímaáhrif verða ljós

Þvert á til­mæli lands­stjórnar sinnar ætlar Jenis av Rana, ráð­herra í fær­eysku lands­stjórn­inni, ekki að fara í bólu­setn­ingu. Jenis vakti mikla athygli hér á landi fyrir um ára­tug þegar hann neit­aði að sitja til borðs með Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur.

Jenis av Rana er ráðherra utanríkismála sem og mennta- og menningarmála í færeysku landsstjórninni.
Jenis av Rana er ráð­herra utan­rík­is­mála sem og mennta- og menn­ing­ar­mála í fær­eysku lands­stjórn­inni. Mynd: EPA

Jenis av Rana, utan­ríkis- og mennta­mála­ráð­herra lands­stjórn­ar­innar í Færeyjum, hyggst ekki láta bólu­setja sig við COVID-19. Í sam­tali við fær­eyska vef­mið­il­inn Vága­portal­urin segir Jenis að of mikil óvissa sé um lang­tíma­á­hrif bólu­efnis og að hann vilji ekki þiggja bólu­efni fyrr en lang­tíma­á­hrif þeirra hafa verið rann­sökuð.

Jenis gengur þar með gegn til­mælum sinnar eigin rík­is­stjórnar sem hefur hvatt fólk til að láta bólu­setja sig. Spurður að því hvort Janis telji fær­eysku rík­is­stjórn­ina hafa gert mis­tök með því að mæla með bólu­setn­ingum segir Janis svo ekki vera. Það sé hans ákvörðun að þiggja ekki bólu­efnið og hans skoðun end­ur­spegli ekki skoðun rík­is­stjórn­ar­innar til bólu­setn­ingar.

Ráð­herr­ann er einnig spurður að því hvort hann ráð­leggi fólki frá því að láta bólu­setja sig. Það gerir Jenis ekki, hann seg­ist hvorki geta mælt með eða gegn bólu­efni á þessu stigi máls­ins. Aftur á móti hvetur hann fólk til þess að taka sjálft ákvörðun um hvort það þiggi bólu­setn­ingar.

Rúmlega helmingur Færeyinga fengið bóluefni

Allir Fær­ey­ingar, 16 ára og eldri, eiga rétt á bólu­setn­ingum án end­ur­gjalds. Rúmlega helm­ingur Fær­ey­inga hafa fengið að minnsta kosti eina sprautu af bólu­efni en allir Fær­ey­ingar, 16 ára og eldri, eiga rétt á ókeypis bólu­setn­ingum. Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef fær­eyskra heil­brigð­is­yf­ir­valda sem upp­færðar voru í vik­unni hafa tæp 15 pró­sent Fær­ey­inga fengið seinni skammt bólu­efnis en 36 pró­sent fyrri skammt.

Nú hafa alls 670 greinst með COVID-19 í Færeyjum. Eins og staðan er núna eru tvö virk smit í eyj­unum og fimm í sótt­kví. Frá upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hefur einn ein­stak­lingur lát­ist af völdum veirunnar í Færeyjum.

Neitaði að sitja til borðs með Jóhönnu Sigurðardóttur

Jenis av Rana rataði í frétt­irnar hér heima fyrir rúmum tíu árum síðan vegna fram­komu sinnar í garð Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur sem þá var for­sæt­is­ráð­herra. Jenis ákvað að mæta ekki í kvöld­verð­ar­boð sem haldið var með Jóhönnu og eig­in­konu hennar þegar Jóhanna fór í opin­bera heim­sókn til Færeyja í sept­em­ber árið 2010.

Jenis hefur verið for­maður kristi­lega Mið­flokks­ins í Færeyjum frá árinu 2001 en flokk­ur­inn hefur barist gegn rétt­indum sam­kyn­hneigðra í Færeyjum. Framkoma hans vakti mikla athygli hér á landi en í við­tali við Vága­portal­urin sagði Jenis að honum dytti ekki í hug að sitja veisl­una, heim­sókn Jóhönnu væri hrein ögrun og ekki í sam­ræmi við boð­skap Bibl­í­unnar. Kaj Leo Johann­es­sen, þáver­andi lög­maður Færeyja, sagði Jenis av Rana að hann ætti að skamm­ast sín fyrir ummælin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár