Umhverfisráðherra í ríkisstjórn sem hefur beitt fyrir sig slagorðinu „ræsum vélarnar“, lýsti því yfir á dögunum að sér þættu vindmyllur fallegar. Hann hvatti Íslendinga til að aðlaga fegurðarskyn sitt að slíkum mannvirkjum.
Samkvæmt erlendum viðmiðum getur ein vindmylla sést á svæði í 45 kílómetra radíus. Það jafngildir 6 prósentum af heildarlandsvæði Íslands fyrir eina vindmyllu án fyrirstöðu.
Nú þegar eru fjölmörg vindorkuverkefni á teikniborðinu. Sum eru komin lengra. Orkuveitan hefur rutt vegarslóða að 120 metra háu tilraunamastri skammt frá Henglinum vegna vindorkuvers sem myndi sjást frá Reykjavík og næði allt að 210 metra hæð.
Einkafyrirtækið Qair vinnur að því að fá leyfi til að setja upp 30 vindmyllur, allt að 200 metra háar, á Melrakkasléttu sem myndi sjást frá Kópaskeri að Raufarhöfn, nánast af öllu svæðinu sem telst eitt stærsta undirlendi Íslands.
Annað einkafyrirtæki vill reisa 70 vindmyllur á Langanesi, í 3,5 kílómetra fjarlægð frá Þórshöfn, og er komið með leyfi fyrir tilraunamöstrum. Það veltur síðan á sveitarfélögum, umhverfismati og á ráðherranum, sem leggur tillögu fyrir Alþingi.
Í nýjum lögum um vindorkuver var lögð sérstök áhersla á að byggja vindorkuver á þegar röskuðum svæðum. Umhverfisráðherra tók þó sérstaka ákvörðun um að setja vindmyllugarð einkafyrirtækis við Garpsdal í nýtingarflokk, þótt hann liggi að óbyggðum víðernum. Virkjunin „mun skerða ósnortin víðerni og rýra verndargildi landslags“, sagði í áliti Náttúrufræðistofnunar. Þetta var í fyrsta skipti sem ráðherra færir virkjanakost yfir í orkunýtingarflokk, en verkefnastjórn rammaáætlunar hafði sett hann í biðflokk.
Víðerni eru skilgreind í 5 kílómetra fjarlægð frá mannvirkjum, en vindmyllur sjást hins vegar mun lengra að. Vegaslóði hefur allt önnur og minni áhrif á upplifun af víðerni heldur en vindmylla sem teygir sig allt upp í 210 metra hæð.
Fegurð vindmyllanna
Jóhann Páll Jóhannsson orku- og umhverfisráðherra var ásamt Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra viðstaddur vígslu fyrsta vindorkugarðs landsins sem er á vegum Landsvirkjunar við Vaðöldu.
„Ræsið vélarnar!“ fyrirskipaði Daði Már.
Umhverfisráðherrann gekk þó lengra. Í viðtali eftir ræsinguna viðurkenndi hann að mannvirkin væru ágeng og að mikilvægt væri að gæta að umhverfisáhrifum og sátt við nærsamfélag, en sagði svo: „Mér finnst þau reyndar mjög falleg og tignarleg.“
Þá sagði hann vindorkuver bjarga heiminum, ásamt sólarorku, og lagði í því ljósi til að Íslendingar myndu aðlagast mannvirkjunum. „Við þurfum líka bara svolítið að læra að meta þetta og laga fegurðarskynið okkar að orkuskiptabyltingunni,“ sagði hann.
Fegurðin í mannvirkjunum
Fegurðarmat er hluti af lögbundnum en óljósum viðmiðum í uppbyggingu, þótt erfitt sé að lögbinda matskennda fegurð. Í byggingarreglugerð er krafa um að „gæði byggingarlistar“ séu höfð að leiðarljósi við „útlit, efnisval og litaval“. Í skipulagslögum er kveðið á um að deiliskipulag sveitarfélaga geti sett skilmála um þakform, hæð, efnisval og liti.
Þegar reist er opinber bygging er lögbundið að minnst eitt prósent af byggingarkostnaðinum renni til kaupa listaverka í henni og umhverfi hennar. Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Jón Gunnarsson, Diljá Mist Einarsdóttir og Njáll Trausti Friðbertsson, lögðu fram frumvarp í september um að afnema þessa skyldu. Þingmennirnir nefna sem dæmi að í nýja Landspítalanum þurfi að kaupa listaverk fyrir 2,1 milljarð króna, miðað við byggingarkostnaðinn.
Rök þeirra eru í fyrsta lagi að listin sé án gagns, að „listaverkin hafa hvorki áhrif á notkunarmöguleika byggingarinnar né þá starfsemi sem byggingin hýsir“.
Svo er það spurningin um hvað sé fallegt.
„Í öðru lagi eru gæði listaverka eingöngu byggð á huglægu mati. Fagurfræðilegt mat er alltaf háð persónulegri skoðun hvers og eins og því ómögulegt að slá því föstu að tiltekið listaverk sé betra eða fegurra en önnur“, segir í frumvarpinu, sem er nú lagt fram í fimmta sinn.
Fegurðin í náttúrunni
Heil fræðigrein, fagurfræði, er tileinkuð eðli fegurðar. Tvö sjónarmið togast á, að hvaða marki fegurð er afstæð og hversu mikið af henni er algilt. Sögulega hefur sú umræða gjarnan snúið að fegurð kvenna, sem spannaði allt frá Venus von Willendorf til Venus de Milo. Með rómantísku bylgjunni eftir iðnbyltinguna varð sú hugmynd ráðandi að náttúran væri falleg, en áður var hún í meira mæli talin sjálfgefin.
Þegar ný mannvirki eru reist í náttúru utan byggðar eru gerðar kröfur um að gæta þess „að þau falli sem best að svipmóti lands“. Þetta gildir þegar firðir eru þveraðir með grjótruðningi, verksmiðjur reistar og virkjanir settar upp.
Ráðherra getur friðlýst svæði, landslag eða náttúruvætti „sökum fegurðar“.
Það leiðir aftur að spurningunni: Hvað er fegurð?
Rökin og fegurðin
Fegurðarskyn er ekki röklegt. Tilvist okkar er ekki heldur rökleg. Það hvort við viðhöldum íslenskri menningu og tungumáli er hvorki rökleg né nauðsynleg niðurstaða. Allt þetta hefur með rætur að gera og sjálfsmynd okkar sem vex upp úr þeim „allt eins og blómstrið eina“.
Ein leið til að horfa á íslensku rótina er að hún liggi í óspilltri náttúru. Skilgreiningin á óspilltri náttúru er að hún sé víðernin, landsvæði án uppbyggingar, án innviða. Þar er „ræsum vélarnar“, eins mikilvægt og það kann að vera í réttu samhengi, stærsta ógnin. Þar sem orðið „vélar“ er, í samræmi við orðsifjarnar, svik.
Íslensk náttúra er í þessum skilningi samhengi lífs þjóðarinnar. Við getum vel ímyndað okkur að þetta samhengi breytist. Um tveir þriðju þjóðarinnar býr á litlum bletti landsins á höfuðborgarsvæðinu og tæplega 80 prósent á suðvesturhorninu frá Akranesi að Selfossi. Íslendingar geta því aðlagast því að verða óuppnumdir af víðernum. En kynslóðir munu ekki vita hverju þær misstu af.
Náttúra án málsvara
Enginn sérstaklega náttúruverndarsinnaður stjórnmálaflokkur er á Alþingi og markmið núverandi ríkisstjórnar snúa helst að því að gera orkuöflun skilvirkari og skilyrðin skýrari, þótt eitt atriðið í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar hafi snúist um að „ráðast í aðgerðir til að vernda hafsvæði og ósnortin víðerni“.
Sjálfstæðismaðurinn Guðlaugur Þór Þórðarson, sem varð umhverfisráðherra nokkru eftir að formaður Vinstri grænna fór í forsetaframboð og gerði Bjarna Benediktsson að forsætisráðherra, hafði lagt drög að því að veita vindmyllum flýtimeðferð í „röskuðu“ landi. Þessu breytti ríkisstjórnin með lagabreytingu á Alþingi sem setur uppbyggingu vindmylla meiri hömlur, þannig að hún eigi að fara fram á „örfáum afmörkuðum svæðum í sátt við náttúru og nærsamfélag“. Nú eru fjölmargir aðilar þó með áform um að byggja upp vindmyllur víða um landið.
Stjórnvöld settu ramma utan um vindmyllur með frumvarpi á Alþingi. Þar kom fram að horft væri til þess „hvort virkjunarhugmyndin sé að öðru leyti á röskuðu svæði, það er svæði þar sem landnotkun eða mannleg umsvif hafa breytt landi frá upprunalegu náttúrulegu ástandi þess“. „Raskað svæði“ er matskennt og býður upp á að ein röskun ryðji brautina fyrir aðra.
Einn þeirra sem vilja afnema eins prósents regluna um útgjöld til lista í opinberum byggingum, Njáll Trausti Friðbertsson, hefur barist fyrir því að nýr vegur verði lagður yfir Kjöl af einkaaðilum sem myndu rukka fyrir aðgang.
Upphækkuð hraðbraut yfir Kjöl og Sprengisand, sem sumir þingmenn hafa barist fyrir, telst líklega falla að „svipmóti landslags“, samkvæmt laganna hljóðan, en allir sem farið hafa leiðirnar og séð þær vita að upphækkaður þjóðvegur myndi breyta þeim. Þetta yrðu ekki víðerni lengur í sama skilningi.
Algild fegurð
Þegar ferðamenn eru spurðir hvers vegna þeir velja að koma til Íslands svara 86 prósent því að náttúra Íslands sé ástæðan. Þegar þeir voru spurðir nánar fyrir tíu árum nefndu langflestir óspillta og ósnerta náttúru, landslag og óbyggðir. Þeir eru ekki að koma fyrir mannvirkin, heldur til að forðast þau.
Vísindarannsóknir hafa undirbyggt rómantísku bylgjuna sem reis upp úr rofinu milli okkar og náttúrunnar og í manngerðu umhverfi nútímans.
Síðari tíma rannsóknir hafa sýnt fram á að sjúklingar á spítala sem dvelja í herbergi með útsýni yfir gróður fá skjótari bata en þeir sem dvelja við steinvegg. Skynjun á náttúru dregur úr streituviðbrögðum.
Fegurðin er því ekki afstæðari en svo að finna má algildi í hrifningu mannfólks af ósnortinni náttúru. Hverjum þykir sinn fugl fagur, en flestum þykja líklega fuglar almennt fallegir.
Fegurðin er fallvölt. Þegar við „manngerum“ umhverfið með framkvæmdum færum við það langt frá mannlegum skala. Manngervingin hefur mismikil áhrif eftir fjárhag fólks. Fjársterkara fólki verður eftirlátið fallegt, ósnortið umhverfi á meðan þau sem hafa minna fá minna pláss og meiri nálægð við stór mannvirki, sem krefjast aðlögunar fegurðarskyns.
Reynslan í Noregi hefur leitt til fallandi stuðnings við vindorkuver. Einn af hverjum þremur Norðmönnum styður fjölgun vindorkuvera, en 44 prósent studdu þau árið 2023. Til samanburðar styðja mun fleiri, eða 54 prósent, að stofnuð verði kjarnorkuver.
Fegurðarskyn trumpismans
Í viðtali eftir að fyrstu íslensku vindmyllurnar í Vaðöldu voru ræstar gekkst umhverfisráðherrann við því að þær væru umdeildar en sagði að sér „leiddist þegar trumpísk orðræða um vindorku væri flutt til Íslands“.
Þetta er sérstaklega óviðeigandi vegna þess að trumpismanum fylgir skýr skóli um fegurðarmat. Innan hans er dýrkun á manngerðum inngripum í útlit kvenna, skrautstíll, gullhúðun og aðdáun á ýktri stærð sem brýtur upp hefðbundið jafnvægi, eins og sjá má í nýjum veislusal Hvíta hússins og fyrirhuguðum sigurboga í Washington.
Trumpisminn hins vegar felur ekki í sér vernd á ósnortinni náttúru, heldur afnám verndar og iðnvæðingu innan þjóðgarða eða friðlýstra svæða.
Að tengja andstæðinga vindmylla í íslenskri náttúru við trumpisma með beinum eða óbeinum hætti er þannig ósanngirni og alger öfugmæli.
Umhverfisráðherrum Íslands er eins og öðrum frjálst að sjá fegurð í vindmyllum. En við byggingu þeirra verður öðrum ófrjálst að upplifa óspillta náttúru á sama svæði og sjá ósnortið landslag í sjóndeildarhringnum.
Íslendingar hafa það hlutverk að gæta ósnortinnar náttúru, sem á enga rödd en margir geta hagnast á að raska. Að uppræta skynbragð á fegurð víðerna er afdrifaríkari aðgerð en að reisa vindmyllur. Til þess að rækja hlutverkið þarf að forðast að valda röskun á skynjuninni sjálfri og matinu á því hvað telst fallegt.




























































Athugasemdir