Lögreglan rannsakar ekki sundferð þingmanna

Engin kæra eða tilkynning hefur borist lögreglu vegna ferðar þing­mannanna í Selárlaug og því verður málið ekki tekið til efnislegrar meðferðar hjá embættinu. Forstöðu­maður sundlauga í Reykjavík segir svona tilvik ekki hafa komið upp um árabil.

Selárlaug
Sel­ár­laug Þing­menn­irnir fimm fóru í laug­ina eftir lokun. Slíkt gæti verið hús­brot í strang­asta skiln­ingi. Mynd: Af vef Vopnafjarðar

Lögreglunni á Austur­landi hefur hvorki borist tilkynning né kæra vegna atviks þar sem fimm þingmenn eru sagðir hafa farið í leyfis­leysi í Selárlaug í Vopna­firði. Þá kemur fram í svari frá lögreglu­embættinu að húsbrot samkvæmt hegningar­lögum sæti meðferð hjá lögreglu „að kröfu þess sem misgert er við“, eins og það er orðað í svarinu.

Í ljósi þess að Vopna­fjarðar­hreppur hefur ekki tilkynnt málið til lögreglu verður það ekki tekið til efnislegrar meðferðar hjá embættinu. Þau sjónarmið birtust þó hjá sveitar­stjóra, Birni Ingimars­syni, í samtali við Heimildina fyrr í vikunni að það væri óheimilt að fara í laugina eftir lokun. Hann taldi það ekki til eftir­breytni að þingmenn hefðu farið í laugina.

„Nei, ég bara tel að þetta sé nokkuð sem menn eigi ekki að gera og ég vænti þess að þetta muni ekki endurtaka sig,“ sagði hann.

Áratugir frá óboðnum sundlaugagestum

Allur gangur virðist vera á …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár