Skeifan versti staðurinn í borginni — óháð ferðamáta

Skeifan sker sig úr sem sá staður í Reykja­vík sem borg­ar­búar tengja oft­ast við nei­kvæða upp­lifun af sam­göngum. Það gildir óháð því hvort fólk ekur, gengur, hjólar eða ferð­ast með strætó.

Skeifan versti staðurinn í borginni — óháð ferðamáta
Enginn ánægður Hvorki öku­menn né gang­andi eða hjólandi veg­far­endur virð­ast ánægðir með Skeifuna. Rann­sak­endur benda á að bæði hún og Grandi eigi það sam­eig­in­legt að hafa þró­ast með bíla­um­ferð að leið­ar­ljósi Mynd: Golli

Skeifan kemur verst út allra staða í Reykja­vík þegar íbúar eru spurðir um upp­lifun sína af ferðum og sam­göngum. Hún var sá staður sem oft­ast var nefndur sem nei­kvæður, óháð því hvaða ferða­máta svar­endur not­uðu.

Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum tveggja ára rann­sókn­ar­verk­efnis Reykja­vík­ur­borgar og Háskóla Íslands um ferða­venjur og sam­göngur í borg­inni.

Í verk­efn­inu voru jákvæð og nei­kvæð svæði tengd sam­göngum kort­lögð út frá svörum þátt­tak­enda. Skeifan skar sig þar skýrt úr á nei­kvæða end­anum. Grandi, hluti Hring­brautar og nokkrir fjöl­farnir veg­kaflar og gatna­mót voru einnig oft tengd nei­kvæðri upp­lifun.

Hverfi byggt fyrir bílinn

Rann­sak­endur benda á að Skeifan og Grandi eigi það sam­eig­in­legt að hafa þró­ast með bíla­um­ferð að leið­ar­ljósi. Svæðin ein­kenn­ast af dreifðri versl­un­ar­byggð, stórum bíla­stæðum, breiðum akbrautum og flóknum gatna­mótum.

Þátt­tak­endur gagn­rýndu slíkt borg­ar­um­hverfi fyrir að vera fyrst og fremst hannað með þarfir öku­manna í huga.

…
Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GS
    Gunnar Sigurðsson skrifaði
    já ég á að heita að ég sé áskrifandi, allavegana borga ég mánaðarlega áskrift.Þessvegna er ég mjög þreytttur á að komast ekki beint inn á'a blaðið án þess að vera sífellt spurður um hvort ég vilji áskrift.það endar með því að ég segi henni upp ef heldur svo áfram
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Fer yfirleitt nokkrum sinnum í viku í Skeifuna til að versla í Hagkaup, Krónunni og Bónus,
    hef aldrei orðið fyrir neinum trafala.
    2
  • HW
    Hardy Wardropper skrifaði
    Þetta var alltaf svo ótrúlega fyrirsjáanlegt... Það þarf ekki sérfræðinga til að segja frá því...
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár