„Það liggur ljóst fyrir og blasir við að þetta gerðist út af vanhæfi stjórnenda bæjarins, og bæjarstjórarnir tveir, bera höfuðábyrgðina á þessu,“ segir Guðmundur Árni Stefánsson, fyrrverandi oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og fráfarandi varaformaður Samfylkingarinnar. Samfylkingin undir forystu Guðmundar Árna varaði ítrekað við seinagangi vegna lóðakaupa í tengslum við Tækniskólann.
Meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks mistókst að semja um uppkaup á lóðum á suðurhöfn Hafnarfjarðar til þess að reisa Tækniskólann eins og stefnt var að. Að endingu riftu bæjaryfirvöld og Tækniskólinn samningum sín á milli um uppbyggingu skólans í sveitarfélaginu og ákvað rektor Tækniskólans að leita á önnur mið og útilokaði ekki fjárkröfu vegna tafanna.
Vitað hvað þurfti að gera
Heimildin greindi frá því að fundargerðir síðustu fimm ára sýndu andvaraleysi meirihlutans sem tók sig ekki taki þrátt fyrir þrálátar viðvaranir um að sveitarfélagið væri að renna út á tíma varðandi lóðarkaupin. Málið var langt komið í stjórnsýslu bæjarins og var …

















































Önnur grafalavarleg afglöp Sjálfstæðisflokksins var að láta ekki skattleysismörk fylgja neinum vísitölum. Skattbyrðinni hefur verið undanfarin 35 ár velt yfir á láglaunafólk og þá sem minnst hafa úr að moða.
Enn annað mjög ámælisvert er þegar Sjálfstæðisflokkurinn tók þá afdrifaríku ákvörðun að leggja niður í sparnaðarskyni Rannsóknarstofnun byggingaiðnaðarins. Fyrir vikið hafa verið flutt hingað til lands ódýr og ekki hentug byggingaefni sem standast engan veginn íslenskt veðurfar né aðstæður eins og þær eru hér. Fyrir vikið hefur t.d. mygla og ýmsir annmarkar í húsum farið vaxandi sökum einhverrar þröngsýni sem ríkir innan íhaldsmanna.
Þá hefði mátt koma í veg fyrir rányrkju m.a. með takmörkun og jafnvel banni við botnvörpuveiðum sem hafa haft þær afleiðingar að humarmið fyrir Suðurströnd landsins voru gjörsamlega eyðilögð en þau voru áður talin vera ein göfugustu humarmið veraldar. Allt vegna skammtíma sjónarmiða!
Sjálfstæðisflokkurinn er sá flokkur þar sem einkum þröngsýnin ræður ríkjum. Þar hefur verið einbeittur vilji að koma í veg fyrir áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Við eigum margfalt meira sameiginlegt með Evrópusambandinu en flesta grunar. Lagaumhverfið innan þess er á ótalmörgum sviðum komið lengra en okkar sem er á allt of mörgum sviðum fornfálegt. Hvar meðal siðaðra þjóða er dýraníð á borð við blóðmerahald og hvalveiðar látið viðgangast? Erum við kannski í höndunum á skammtímagróðamönnum sem byggja sína afkomu á rányrkju, hroka og heimsku?