„Ég hef ekkert til að kvarta yfir“
Sara og börnin hennar Sara Margrét segir yngstu börnin hafa átt erfitt með að skilja veikindi móður sinnar. Mynd: Golli

„Ég hef ekkert til að kvarta yfir“

Söru Mar­gréti Berg­mann var kippt út úr lífi þriggja barna sinna þeg­ar hún lam­að­ist skyndi­lega frá toppi til táar. End­ur­hæf­ingu henn­ar mið­ar vel og hún nýt­ur litlu hlut­anna í líf­inu. „Ég get ver­ið glöð og þakk­lát fyr­ir allt, jafn­vel þó ég verði alltaf í þess­um stól.“

Sara Margrét Bergmann hélt á eins árs gömlum syni sínum þegar hún áttaði sig á því að eitthvað væri að.

Hún er fædd og uppalin á Seltjarnarnesi og býr þar enn með manninum sínum, Tryggva, og þremur börnum. „Þegar ég veiktist voru börnin eins árs, tveggja ára og sex ára,“ segir hún. „Tvær stelpur og strákurinn er sá yngsti.“

Í nóvember í fyrra var hún 35 ára og komin á fremsta hlunn með að klára gráðu í hjúkrunarfræði. „Ég var búin að fara í alls konar annað nám en var ekki að finna mig í því,“ segir hún. „Svo starfaði ég í svolítinn tíma sem flugfreyja hjá WOW Air. Þegar ég varð ófrísk að fyrstu stelpunni minni og komin í fæðingarorlof þá hætti WOW. Mig hafði alltaf langað að verða ljósmóðir og að eignast stelpuna mína vakti áhugann aftur.“

Til að geta lært ljósmóðurfræði þurfti hún fyrst að klára fjögurra …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífið á Grensás

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár