„Manni er vel tekið þegar maður safnar fyrir Grensás“

Guðrún Pét­urs­dóttir kynnt­ist starfi Grensáss þegar systir hennar slas­að­ist. Hún er nú for­maður Hollvina Grensáss og fékk Messen­ger-skila­boð frá ráð­herra um að fjár­magn hefði verið tryggt fyrir við­bygg­ingu.

„Manni er vel tekið þegar maður safnar fyrir Grensás“
Guðrún Pét­urs­dóttir Formaður Hollvina Grens­ás­deildar segir að það sé ekki á sjúk­ling­ana á Grensás leggj­andi að þurfa líka að standa í því að berj­ast fyrir umbótum. Mynd: Golli

Guðrún Pét­urs­dóttir, líf­eðl­is­fræð­ingur og pró­fessor emerita, er for­maður sam­tak­anna Holl­vinir Grens­ás­deildar sem sinna fjár­öflun fyrir end­ur­bótum á deild­inni og þrýsta á stjórn­völd um fjár­magn fyrir mik­il­væg verk­efni. Hún hefur starfað með sam­tök­unum nán­ast frá stofnun en hún kynnt­ist deild­inni fyrst þegar systir hennar slas­að­ist mjög alvar­lega og lam­að­ist frá hálsi.

„Hún naut þjálf­unar og aðstoðar Grens­ás­deildar í meira en ár,“ segir Guðrún. „Við fjöl­skyldan vorum nán­ast heim­il­is­menn þarna á þeim tíma.“

Hún segir að flestir stjórn­ar­menn Hollvina Grens­ás­deildar hafi ann­að­hvort sjálfir verið á deild­inni sem sjúk­lingar eða eigi ein­hvern ást­vin sem hefur verið þar. „Maður lærir á eigin skinni hvaða krafta­verka­starf­semi fer þarna fram,“ segir Guðrún. „Því þessi stofnun lætur lítið yfir sér þarna uppi á hæð­inni, falin á milli trjánna. En starfið sem fer fram þarna inni er ein­stakt. Það var magnað að vera þarna inni í meira en ár og fylgj­ast með fólki sem kom inn …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífið á Grensás

ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

10 mín. lestur

ViðtalLífið á Grensás

„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“

Yfir­læknir og deild­ar­stjóri á Grens­ás­deild segja ungt fólk mæta fjölda áskor­ana eftir útskrift af deild­inni. Dæmi séu um að ungt fólk sé sent á elli­heim­ili eða bíði í lengri tíma eftir þjón­ustu. Heilaskaðar hjá ungu fólki geta reynt á maka, fjöl­skyldur og nær­sam­fé­lagið en gef­andi sé að sjá fólk halda aftur út í lífið eftir vel heppn­aða end­ur­hæf­ingu.

12 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár