Svona er ástandið í fárviðrinu á Siglufirði

Vind­hviður fóru upp í 55 metra á sek­úndu.

Svona er ástandið í fárviðrinu á Siglufirði
Björg­un­ar­að­gerðir Sjálf­boða­liðar úr björg­un­ar­sveit­inni á Siglu­firði bregð­ast við þaki sem var að gefa sig undan vind­inum. Mynd: Landsbjörg

Brak var „á ferð og flugi“ um Siglu­fjörð í dag í fár­viðri, þar sem vind­hviður mæld­ust upp í 55 metra á sek­úndu, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Lög­regl­unni á Norð­ur­landi eystra. Á með­fylgj­andi myndum má sjá við­bragðs­að­ila í bænum reyna að fyr­ir­byggja frekara tjón.

Ofan á tjón vegna vinds var byrj­aður að koma fram skaði af völdum yfir­borðs­vatns. 

Í dag var einnig varað við hættu á sjáv­ar­flóðum hinum megin á land­inu, í Vík í Mýrdal. Björg­un­ar­sveitin á Húsavík var sömu­leiðis ræst út vegna versn­andi veð­urs og rign­ingar.

App­el­sínugul við­vörun er á Norð­vest­ur­landi og á Vest­fjörðum fram á nótt. „Lausa­munir geta fokið,“ segir Veð­ur­stofan. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er gul við­vörun, eins og ann­ars staðar á land­inu, fyrir utan Suð­ur­landsund­ir­lendið, þar sem ekki er við­vörun.

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur, sem var­aði fyrstur við komu lægð­ar­innar í fyrra­dag segir á Facebook-síðu sinni í dag að met fyrir lágan loft­þrýst­ing í októ­ber­mán­uði, sem staðið hefur frá árinu 1963, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár