Minnti á samstöðu í skugga „stórra persónuleika“

Forsætis­ráðherra minnti á að stéttar­félögin stæðu sterkari saman en sundruð þegar hún ávarpaði þing Alþýðu­sambands Íslands. Hún sagði verkalýðs­hreyfinguna mun stærri en stjórn­málaflokka, hvað þá einstaka forystu­menn.

Samstaða
Samstaða Kristrún Frosta­dóttir ávarp­aði þing Alþýðu­sam­bands­ins í morgun og minnti á sam­stöðu.

„Ég veit að þið hér vitið manna best hvað til þarf. Ekki „skyndi­upphlaup“ og „hávaða­fundi“ – heldur „markvisst, sleitu­laust strit“. Úthald til lengri tíma,“ sagði Kristrún Frosta­dóttir forsætis­ráðherra í ávarpi sínu á þingi Alþýðu­sambands Íslands á Hilton hótelinu í dag.

Orðin eru tilvitnun í Jón Baldvinsson, prentara, alþingis­mann og frumkvöðul íslenskra verkalýðs­hreyfinga, en hann lést árið 1938. Kristrún lagði mikla áherslu á eininguna og minnti á að sameinuð verkalýðs­hreyfing væri miklu stærri en stök félög, einn flokkur eða hvað þá einstakir forystu­menn í stjórn­málum eða stéttar­félögum.

Svo mælti Kristrún: „Og það segi ég af fullri virðingu fyrir stórum persónu­leikum sem takast á innan Alþýðu­sambandsins – enda ekkert nýtt að það standi styr um menn og málefni í þessari hreyfingu. En það hefur sýnt sig og er margreynt í gegnum 110 ára sögu: Við erum sterkari saman.“

Vísun í átök síðustu daga

Orðin ríma við átök síðustu …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár