Andrew fær 302 þúsund pund fyrir að yfirgefa setrið sitt í Windsor

Andrew Mountbatten-Windsor, sem einu sinni var prins, fær bætur fyrir að þurfa að flytja burt af lóð Windsor-kast­al­ans. Bæturnar voru dregnar frá 1,8 millj­óna punda greiðslu vegna ólok­inna við­gerða á Royal Lodge. Karl III. kon­ungur neyddi bróður sinn til að flytja þaðan í fyrra og býr hann nú á Sandring­ham-land­ar­eign kon­ungs.

Andrew fær 302 þúsund pund fyrir að yfirgefa setrið sitt í Windsor
Leitað Breska lög­reglan gerði hús­leit á heim­ili Andrew í febr­úar vegna rann­sóknar á meintum brotum hans í opin­beru starfi. Brotin tengj­ast sam­bandi hans við banda­ríska kyn­ferð­is­brota­mann­inn Jeffrey Epstein. Mynd: Shutterstock

Andrew, fyrr­ver­andi prins Bret­lands sem fallið hefur í ónáð, fékk 302 þús­und pund, jafn­virði um 48,8 millj­óna króna, í bætur fyrir að láta af hendi leigu­rétt sinn að setri á Windsor-land­ar­eign kon­ungs­fjöl­skyld­unnar. Þetta greindi félagið sem ann­ast umsýslu kon­ung­legra fast­eigna frá í dag.

Andrew, sem ber nú nafnið Andrew Mountbatten-Windsor, var neyddur til að yfir­gefa Royal Lodge, þar sem hann hafði búið um ára­bil, af bróður sínum, Karli III. kon­ungi, í fyrra. Hann hefur síðan flutt í hús á Sandring­ham-land­ar­eign kon­ungs í aust­ur­hluta Englands.

Crown Estate er sjálf­stætt félag sem rekið er á við­skipta­legum for­sendum, hefur umsjón með kon­ung­legum fast­eignum og skilar hagn­aði til rík­is­ins. Í yfir­lýs­ingu til AFP sagði félagið að Andrew hefði „látið af hendi leigu­rétt sinn“.

Þar sagði að hann hefði „að fullu rýmt“ hús­næðið og greitt 1,8 millj­ónir punda, jafn­virði um 291 millj­ónar króna, vegna við­gerða sem enn átti eftir að sinna.

…
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár