Úkraína sakaði Bandaríkin í dag um að hjálpa Rússlandi með því að vara ekki við yfirvofandi eldflaugaárásum og torvelda viðbrögð úkraínska hersins með breytingum á Starlink-kerfinu, sem herinn notar á vígvellinum.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði það „með öllu óréttlátt“ að engin viðvörun hefði borist um hrinu öflugra árása í gærkvöldi og snemma í morgun. Hann sakaði Rússland um að virða vísvitandi að vettugi meint „vopnahlé í orkumálum“ sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði tilkynnt.
Háttsettur embættismaður í Kænugarði staðfesti að Bandaríkin hefðu undanfarna daga hótað að hætta að veita upplýsingar um eldflaugaskot Rússa sem Úkraína notar til að verjast árásum. Trump neitaði því í gær að hafa gert það.
Embættismaðurinn og fulltrúar varnarmála bentu einnig á að Washington kynni að standa að því að hægt hefði á nettengingu sumra Starlink-búnaða. Þeir nýtast úkraínska hernum við árásir á landsvæði hernumin af Rússum og við stjórnun dróna sem granda árásardrónum.
„Það er …































Athugasemdir