Þrjár konur kvartað undan áreitni starfsmanns RÚV

Stjórn­endum hjá Rík­is­út­varp­inu hafa borist kvart­anir frá þremur konum vegna áreitni af hálfu karl­kyns starfs­manns fjöl­mið­ils­ins. Maðurinn er í leyfi frá störfum. Fyrstu kvart­an­irnar bár­ust í ágúst.

Þrjár konur kvartað undan áreitni starfsmanns RÚV
Tilkynnt Málið hefur komið á borð bæði frétta­stjóra og útvarps­stjóra, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Þrjár konur sem starfa á Rík­is­út­varp­inu hafa kvartað undan áreitni af hálfu karl­kyns starfs­manns fyr­ir­tæk­is­ins. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar barst fyrsta kvörtunin í ágúst og síðan hafa tvær aðrar bæst við. Maðurinn er í leyfi frá störfum en Heim­ildin hefur ekki fengið stað­fest hvort það hafi verið að eigin frum­kvæði eða að fyr­ir­mælum stjórn­enda.

Uppfært: Starfs­mað­ur­inn hefur látið af störfum hjá Rík­is­út­varp­inu.

Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, frétta­stjóri RÚV, seg­ist ekki tjá sig um ein­staka starfs­manna­mál og vill ekki stað­festa að kvart­anir hafi borist. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar hefur málið þó bæði komið á hans borð og Stefáns Eiríks­sonar útvarps­stjóra. Heim­ildin óskaði skrif­lega við­bragða Stefáns sem sagði, líkt og Heiðar, að hann myndi ekki tjá sig um mál ein­stakra starfs­manna. 

„Almennt séð, komi fram kvart­anir í garð ein­stakra starfs­manna sem geta fallið undir gild­is­svið reglu­gerðar um aðgerðir gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni og ofbeldi á vinnu­stöðum nr. 1009/2015, fer málið í við­eig­andi far­veg, þ. á m. að gættum fyr­ir­mælum reglu­gerð­ar­innar auk við­bragðs­á­ætl­unar RÚV vegna mál­efna af þessu tagi,“ sagði Stefán í skrif­legu svari. 

Þær skyldur eru lagðar á herðar atvinnu­rek­anda í reglu­gerð­inni að láta kyn­ferð­is­lega áreitni ekki við­gang­ast á vinnu­stað og gera starfs­mönnum ljóst með skýrum hætti að slíkt sé óheim­ilt.

Auk þess segir í reglu­gerð­inni að „við með­ferð máls [skuli] atvinnu­rek­andi sýna var­færni og nær­gætni í aðgerðum sínum með virð­ingu og einka­hagi hlut­að­eig­andi starfs­manna í huga, meðal ann­ars með því að veita ekki óvið­kom­andi aðilum upp­lýs­ingar um mál og tryggja að utan­að­kom­andi aðilar sem kunna að koma að með­ferð máls geri slíkt hið sama.“

Lögð er skylda á atvinnu­rek­endur um snör við­brögð. „Atvinnu­rek­andi skal bregð­ast við eins fljótt og kostur er þegar honum berst kvörtun eða ábend­ing um ein­elti, kyn­ferð­is­lega áreitni, kyn­bundna áreitni eða ofbeldi á vinnu­stað sem og verði hann var við slíka hegðun eða aðstæður á vinnu­staðnum sem líkur eru á að leitt geti til slíkrar hegð­unar verði ekki gripið til aðgerða. Skal atvinnu­rek­andi þá meta aðstæður í sam­vinnu við vinnu­vernd­ar­full­trúa vinnu­stað­ar­ins, eftir því sem við á, og utan­að­kom­andi aðila ef með þarf. Skal atvinnu­rek­andi jafn­framt tryggja að við matið sé hlut­að­eig­andi starfs­mönnum gef­inn kostur á að koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi og að alla jafna sé rætt við einn aðila máls í senn.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar er kurr á meðal starfs­fólks RÚV sem veit af mál­inu, vegna þess hve langur tími leið frá því að form­legar kvart­anir voru lagðar fram vegna áreitn­innar og þar til mað­ur­inn fór í leyfi. Fyrsta málið sem bein­ist að mann­inum kom upp í byrjun ágúst, það næsta um miðjan þann mánuð og þriðja málið í byrjun sept­em­ber. 

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár