Keyrði á barn og ók í burtu

Lög­reglan leit­aði að öku­manni sem ók á átta ára gam­alt barn í Mos­fellsbæ í gær­kvöldi. Öku­mað­ur­inn keyrði á brott eftir að hafa ekið á barnið, sem slas­að­ist.

Keyrði á barn og ók í burtu
Mos­fells­bær Lög­reglan leitar öku­manns sem ók á átta ára dreng á reið­hjóli í Mos­fellsbæ og ók af vett­vangi. Mynd: Golli

Ökumaður bif­reiðar sem ók á átta ára dreng á reið­hjóli í Mos­fellsbæ í gær­kvöldi hefur gefið sig fram við lög­reglu. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði áður lýst eftir öku­mann­inum, sem ók af vett­vangi án þess að kanna líðan drengs­ins.

„Við árekst­ur­inn féll dreng­ur­inn af hjól­inu og slas­að­ist, auk þess sem skemmdir urðu á hjól­inu, en öku­maður bíls­ins ók rak­leiðis af vett­vangi án þess að skeyta um dreng­inn og líðan hans,“ sagði í til­kynn­ingu lög­regl­unnar í dag.

Þar árétt­aði lög­reglan einni að við atvik eins og þetta sé mik­il­vægt að öku­menn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlot­ist af né að skemmdir hafi orðið. Þá eigi að til­kynna slík mál til lög­reglu. Ekki sé víst að áverkar séu alltaf sjá­an­legir á vett­vangi. 


Uppfært klukkan 15.12 með upp­lýs­ingum um að öku­mað­ur­inn hafi gefið sig fram.
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu