Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður

Pawel Bartoszek er nýr þing­flokks­for­maður Við­reisnar. Hann tekur við af Sigmari Guð­munds­syni, sem hefur óskað eftir að sinna öðrum verk­efnum á Alþingi þegar hann snýr aftur úr veik­inda­leyfi.

Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður
Formaður Pawel var kjör­inn for­maður þing­flokks Við­reisnar í dag. Mynd: Golli

Pawel Bartoszek hefur verið kjör­inn for­maður þing­flokks Við­reisnar. Kosn­ingin fór fram á fundi þing­flokks­ins, að því er fram kemur í til­kynn­ingu flokks­ins. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar sótt­ust fleiri en Pawel eftir þing­flokks­for­mennsku. Stóð bar­áttan helst á milli hans og Gríms Gríms­sonar þing­manns, sem var kjör­inn rit­ari á sama fundi. 

„Ég hlakka til að vinna að því að frjáls­lynd rödd Við­reisnar heyr­ist enn sterkar innan þings sem utan“

Pawel tekur við af Sigmari Guð­munds­syni, sem hefur verið í veik­inda­leyfi en er vænt­an­legur aftur til starfa á næst­unni. Samkvæmt til­kynn­ing­unni hefur Sigmar óskað eftir að taka að sér önnur verk­efni á Alþingi.

Pawel seg­ist þakk­látur fyrir traustið sem þing­flokk­ur­inn sýni honum og nefnir afgreiðslu fjár­laga meðal mik­il­væg­ustu verk­efna fram undan.

„Við erum til að mynda að ljúka afgreiðslu halla­lausra fjár­laga sem stuðla að minni verð­bólgu og lægri vöxtum, en það er eitt mik­il­væg­asta verk­efni þess­arar …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu