Stendur ekki til að banna olíuleit

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir rík­is­stjórn­ina ekki hyggj­ast banna olíu­leit í íslenskri lög­sögu. Stjórn­völd séu ekki fjand­sam­leg frek­ari rann­sóknum þótt opin­ber stofnun telji hverf­andi líkur á vinn­an­legri olíu.

Sækja um
Sækja um Kristrún sagði að áhuga­samir aðilar þyrftu að leita form­lega til stjórn­valda vildu þeir ráð­ast í frek­ari rann­sóknir á olíu og gasi í íslenskri lög­sögu. Mynd: Golli

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að rík­is­stjórnin hygg­ist ekki leggja fram frum­varp um bann við olíu­leit í íslenskri lög­sögu. Fjár­festar sem hafi áhuga á frek­ari rann­sóknum geti leitað form­lega til stjórn­valda.

Þetta kom fram í svari Kristrúnar við fyr­ir­spurn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, á Alþingi í dag. Sig­mundur vildi fá skýr svör um hvort stjórn­völd myndu standa í vegi fyrir frek­ari rann­sóknum á olíu og gasi á Dreka­svæð­inu, norð­austur af Íslandi, og hugs­an­legri vinnslu í fram­hald­inu.

„Það er eng­inn fjand­skapur í garð þessa máls frá stjórn­völdum,“ sagði Kristrún og bætti síðar við að áhuga­samir aðilar þyrftu að bera sig eftir björg­inni gagn­vart stjórn­völdum. „Það er bara í góðu lagi mín vegna.“

Vill að stjórnvöld taki vel á móti fjárfestum

Sig­mundur Davíð hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um olíu- og gasvinnslu og segir mikla fjár­hags­lega hags­muni geta falist í því að nýta mögu­legar auð­lindir á Dreka­svæð­inu.

Hann …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Áherslur Norðurlanda eru mismunandi hér. T.d. árið 2020 samþykktu dönsk stjórnvöld að: Hætta almennum nýjum útboðum á olíu- og gasleitarsvæðum. Stefna að því að allri olíu- og gasvinnslu í Danmörku verði hætt fyrir árslok 2050.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár