„Mér fyndist bara miklu betra að spyrja ESA um það“

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar kröfð­ust svara um hvort Eft­ir­lits­stofnun EFTA muni draga máls­höfðun gegn Íslandi til baka verði bókun 35 sam­þykkt á Alþingi. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra sagð­ist ekki vita hvað stofn­unin myndi gera. Þing­menn­irnir gagn­rýndu ráð­herrana fyrir óskýr svör.

„Mér fyndist bara miklu betra að spyrja ESA um það“
Áður á móti Áður en Eyjólfur tók við ráð­herra­emb­ætti var hann andsú­inn bókun 35 en hann styður málið í dag. Mynd: Golli

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar kröfðu Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra og Eyjólf Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra svara um máls­höfðun Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, ESA, gegn Íslandi vegna inn­leið­ingar bók­unar 35 við EES-samn­ing­inn.

Þing­menn­irnir vildu meðal ann­ars vita hvort ráð­herr­arnir teldu að ESA myndi draga mál sitt gegn Íslandi til baka ef Alþingi sam­þykkti frum­varp utan­rík­is­ráð­herra um inn­leið­ingu bók­un­ar­innar. 

„Ég veit það ekki, ég bara veit ekki hvað ESA mun gera,“ sagði Eyjólfur í svari við fyr­ir­spurn Sigurðar Arnar Hilm­ars­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

ESA höfð­aði mál gegn Íslandi fyrir EFTA-dóm­stólnum í lok sept­em­ber vegna þess að stofn­unin telur íslenska ríkið ekki hafa inn­leitt bókun 35 með full­nægj­andi hætti. Frumvarp utan­rík­is­ráð­herra um inn­leið­ingu hennar er nú til með­ferðar í utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis.

Sagðist vona að ESA drægi málið til baka

Sigurður Örn spurði Eyjólf hvort hann teldi enn rétt að EFTA-dóm­stóll­inn skæri úr um ágrein­ing­inn eða hvort hann vildi að Alþingi afgreiddi frum­varpið. Hann vís­aði …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár