Dótturfélag Kýpurfélags Samherja skráð í Jónshúsi

Eign­ar­halds­fé­lag Samherja á Kýpur átti danskt dótt­ur­fé­lag sem skráð var á heim­ili Jóns Sig­urðs­sonar í Kaup­manna­höfn. Stofn­andi félags­ins, Hrannar Hólm, er eig­in­maður for­stöðu­manns Jónshúss og segir hann að eng­inn rekstur hafi verið í félag­inu en vill ekki tjá sig um til­gang þess.

Dótturfélag Kýpurfélags Samherja skráð í Jónshúsi
Í Jónshúsi Dótt­ur­fé­lag Kýp­ur­fé­lags Samherja var með heim­il­is­festi í Jónshúsi í Kaup­manna­höfn vegna þess að eig­in­maður for­stöðu­manns húss­ins stofn­aði félagið fyrir Samherja.

Eign­ar­halds­fé­lag í eigu Kýp­ur­fé­lags útgerð­ar­ris­ans Samherja var með skráða heim­il­is­festi í Jónshúsi í Kaup­manna­höfn, húsi við göt­una Øster Voldgade 12 þar sem Jón Sig­urðs­son, for­seti og sjálf­stæð­is­hetja Íslend­inga á nítj­ándu öld, bjó, sem er í eigu íslenska rík­is­ins. Félagið heitir Tind­holmur DK Aps og er í eigu félags­ins Esju Shipping Limited, fyr­ir­tæki sem tals­vert hefur verið til umfjöll­unar í íslenskum fjöl­miðlum í gegnum árin út af fisk­veiðum í Afríku. Þetta má sjá í dönsku fyr­ir­tækja­skránni.

Félagið á Kýpur heldur meðal ann­ars utan um eign­ar­hald á starf­semi Samherja í Afríku, nánar til­tekið í Namibíu, og hélt áður utan um eign­ar­hald á útgerð Samherja á Kanarí­eyjum sem keypt var af Sjóla­skipum árið 2007.  Stundin fjall­aði um Esju Shipping, og starf­semi Samherja á Kýpur almennt, fyrir skömmu og sagði meðal ann­ars frá því að fyr­ir­tækið hefði selt fisk frá Íslandi í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár