Samherji greiðir nær enga skatta á Kýpur af tugmilljarða eignum

Dótt­ur­fé­lög Samherja á Kýpur stunda millj­arða króna við­skipti með fisk við önnur félög Samherja en þessi við­skipti koma ekki fram í opin­berum gögnum Hagstofu Íslands. Félögin greiddu aðeins 22 millj­ónir króna í skatta þar í landi á árunum 2013 og 2014, þrátt fyrir að eiga rúm­lega 20 millj­arða eignir þar. Félög Samherja hafa meðal ann­ars lánað pen­inga til Íslands í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands.

Samherji greiðir nær enga skatta á Kýpur af tugmilljarða eignum

Dótt­ur­fé­lög útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja á Kýpur, sem meðal ann­ars hafa haldið utan um rekstur á arð­bærum útgerðum Samherja í Afríku síð­ast­liðin tólf ár, eiga í svo miklum inn­byrðis við­skiptum við önnur félög í Sam­herja­stæð­unni að þau greiða nær enga skatta á Kýpur. Ástæðan er sú að tap­rekstur og upp­safnað skatta­legt tap félag­anna er það mikið að skatt­greiðslur félag­anna minnka fyrir vikið. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingum félag­anna tveggja, Esju Shipping Limited og Esju Seafood Limited,  fyrir árið 2013 sem Stundin hefur undir höndum. Árs­reikn­ing­arnir eru merktir í bak og fyrir „ ekki til opin­berra nota“, líkt og upp­lýs­ing­arnar eigi ekki og megi ekki koma fram á opin­berum vett­vangi.  

Á árunum 2013 og 2014 borg­uðu þessi tvö félög sam­tals 22 millj­ónir króna í skatt á Kýpur en voru á sama tíma með tekjur upp á meira en 12 millj­arða króna. Félögin voru og eru í eigu íslensks eign­ar­halds­fé­lags sem heitir Polaris Seafood …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sjávarútvegur

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár