Skólahald í skjóli loftvarnaflauta

Skólahald í Grindavík hefur gengið vel og óslitið frá því það hófst í lok ágúst. Loftvarnar­flautur eru prófaðar í lok hvers mánaðar og rýmingar­áætlanir æfðar. Um þrjátíu skólabörn eru í bænum.

Í vari
Í vari Hér má sjá skóla­barn á leið heim úr skól­anum með víga­legan og gró­inn varn­ar­garð í bak­sýn. Mynd: Golli

Skólahald á Íslandi verður varla sérkennilegra en í Grindavík þennan veturinn. Tæplega þrjátíu nemendur eru í öllum grunn­skólum Grinda­víkur. Kennslu­stundir eru haldnar í skjóli loftvarna­flauta og eldgoss sem gæti brotist fram á hverri stundu. Miklir varnar­garðar eru allt um kring eins og sést á meðfylgjandi ljósmynd þar sem unglingur heldur heim á leið, umlukinn hörðum hversdags­leika Grinda­víkur. 

Goshrinur síðustu ára hafa nánast lagt sveitar­félagið í eyði. Bæjarbúar berjast þó fyrir endur­reisn sveitar­félagsins og þá skiptir skólinn höfuðmáli. Auk þess er stefnt á stóraukið frístunda­starf barna og ungmenna.

Frábrugðið því sem skólastjórinn þekkir

„Skólahald fór vel af stað og hefur bara gengið vel,“ segir Guðlaug Erlends­dóttir, skóla­stjóri Grinda­víkurskóla. Hún er þaul­reyndur skóla­stjórnandi sem hefur starfað víða um land. Hún segir 27 börn vera í skólanum frá 1. til 10. bekkjar auk þess sem tíu börn eru í leikskóla bæjarins.

„Þetta er frábrugðið því sem ég þekki og …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja nætur­langt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því

Frá og með morgun­deginum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyrir­tækjum í Grindavík heimilt að fara í bæinn og dvelja þar nætur­langt. Í nýlegri frétta­tilkynningu lögreglu­stjórans á Suðurnesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að innviðir bæjarins séu í lamasessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjósanlegur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár