Ráðgjöf Ólafs Ragnars: Liggjum lágt og leitum ásjár Bandaríkjanna

Real­ismi og tæki­færis­hyggja Ól­afs Ragn­ars Gríms­son­ar kveð­ur á að Ís­land eigi að láta lít­ið fyr­ir sér fara með­an Græn­landi er ógn­að. Heim­ur­inn sé breytt­ur. Hann vill „rækta sam­band­ið“ við stjórn­völd í Banda­ríkj­un­um.

Ráðgjöf Ólafs Ragnars: Liggjum lágt og leitum ásjár Bandaríkjanna
Ólafur Ragnar Grímsson Einn reynslumesti stjórnmálamaður landsins í utanríkismálum leggur til að Íslendingar láti lítið fyrir sér fara og leiti ásjár hjá þeim sem gætu haft áhrif á Bandaríkjaforseta. Mynd: Samsett

Ólafur Ragnar Grímsson kynnti í gær sýn örlagahyggju og raunhyggju fyrir alþjóðasamskipti Íslendinga, á sama tíma og hann boðaði bjartsýna trú á að Íslandi stafaði engin ógn af útþenslustefnu Bandaríkjanna.

Í viðtali í Silfrinu á RÚV í gærkvöldi sagði Ólafur Ragnar, sem var forseti Íslands frá árunum 1996 til 2016, lengst allra Íslendinga, og er að auki fyrrverandi ráðherra og prófessor í stjórnmálafræði, að Íslendingar ættu að láta lítið fyrir sér fara meðan Bandaríkin reyni að taka yfir Grænland og innlima það í sitt landsvæði. 

Ólafur Ragnar veðjar þannig á að það sé „engin sérstök ógn eða vandamál fyrir Ísland.“

Bæði leggur hann til að Íslendingar veki ekki athygli Trump-stjórnarinnar og svo að íslenska utanríkisþjónustan rækti sambandið við bandarísk stjórnvöld, þingmenn, tæknifyrirtæki og hægri hugveitur.

Eiginkona Ólafs Rangars, forsetafrúin fyrrverandi Dorrit Moussaieff, sagði ummælum á Instagram undir frétt um áform Trumps um að yfir taka Grænland í gær, að í gær að Trump „hefði rétt fyrir sér“, „ hvort sem þér líkar betur eða verr“.

Síðar sagði hún í svari til fréttavefsins Mannlífs að ummæli hennar hefðu misritast eða misskilist og eyddi þeim.

„Bara valdið sem skiptir máli“

Í viðtalinu í Silfrinu í gær lýsti Ólafur Ragnar því að virkni alþjóðamála hefði breyst og varaði við því að mistök væru gerð, með því að vinna gegn þeim sem valdið hafa.

„Stephen Miller, sem er einn áhrifaríkasti ráðgjafi Trumps klæddi þetta í mjög kaldrifjaðan búning og sagði að nú er það bara valdið sem skiptir máli. Þannig hefur þetta auðvitað alltaf verið í sögunni. Og við ætlum okkur að ráða.  Svo kemur fjármálaráðeherra Bandarríkjanna í gær og segir: Evrópa mun bara átta sig. Af því að hún þarf að átta sig. Og svo bætti hann Úkraínu inn á skákborðið. Það er að segja, þessi sveit. Hún horfir bara á heiminn allan sem skákborð Bandaríkjanna og Grænland er bara hluti af þessari þróun sem þeir ætla sér að ná tökum á,“ sagði Ólafur Ragnar og varaði við:

„Ég held að bæði Evrópa og aðrir muni gera mjög mikil mistök ef þeir átta sig ekki á því, hvort sem okkur líkar betur eða verr, að það er algerlega búið að skipta um valdaforrit í Washington. Þannig að gamlar kenningar og aðferðir um að eiga við þetta mikla veldi, þær duga ekki lengur.“ 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • John Sigurdsson skrifaði
    Að einhver skuli enn nenna að æra vitleysuna uppúr ÓRG ...
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Í miðju stríði hrósar Trump verkefnum sínum: „Tjörnin okkar er stærri en skýjakljúfar“
InnlentBandaríki Trumps

Í miðju stríði hrós­ar Trump verk­efn­um sín­um: „Tjörn­in okk­ar er stærri en skýja­kljúf­ar“

Á sama tíma og vopna­hlé við Ír­an hékk á blá­þræði og Re­públi­kana­flokk­ur­inn stóð frammi fyr­ir póli­tískri áhættu vegna kostn­að­ar stríðs­ins, sá Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti til þess að blaða­menn sem voru sam­an komn­ir á for­seta­skrif­stof­unni vissu hvað hon­um lá helst á hjarta: end­ur­bæt­ur á hinni sögu­frægu spe­g­iltjörn við Lincoln-minn­is­varð­ann.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Halldór Jörgen Olesen
3
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.
Samfylkingin klofnar vegna brottfararstöðvar: Hvað annað átti að gera?
4
Stjórnmál

Sam­fylk­ing­in klofn­ar vegna brott­far­ar­stöðv­ar: Hvað ann­að átti að gera?

Þing­nefnd­in sem fjall­aði um ný­sam­þykkta brott­far­ar­stöð fékk ábend­ing­ar og hug­mynd­ir að minnst tíu öðr­um leið­um sem hægt væri að fara en að setja börn í lok­að úr­ræði í brott­far­ar­stöð. Sam­fylk­ing­in virð­ist klof­in í af­stöðu sinni til máls­ins þó að þingl­ið flokks­ins hafi hreykt sér af sam­þykkt lag­anna.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár