Trump skoðaði hugmynd að niðurrifi Kennedy Center

Ljósmynd AFP af Donald Trump um borð í Air Force One hefur vakið athygli. Þar sést forsetinn skoða mynd sem virðist sýna niðurrif Kennedy Center, eftir að dómari kom í veg fyrir að nafn Trumps yrði sett á bygginguna.

Ljósmynd AFP af Donald Trump þar sem hann virðist skoða mynd af niðurrifi Kennedy Center í Washington hefur vakið athygli á samfélags­miðlum. Trump hefur hótað að rífa hina þekktu menningar­stofnun eftir að honum var meinað að nefna hana eftir sjálfum sér.

Á myndinni, sem Brendan Smialowski, ljós­myndari AFP, tók á Joint Base Andrews-herstöðinni seint á miðvikudag, sést Trump í gegnum glugga Air Force One halda á spjaldi þar sem sjá má rauða áletrunina: „Kennedy Center DEMOLIS...“

Glugga­karmur flug­vélarinnar skyggir á það sem eftir er orðsins, en Trump hefur ítrekað rætt þann möguleika að rífa Kennedy Center.

Fyrir neðan textann er stór mynd af gulri vinnuvél að moka upp rústum.

Vinsældir Trumps mælast nú rétt yfir 30 prósentum, samhliða óánægju vegna stríðsins gegn Íran og hækkandi framfærslu­kostnaðar. Á sama tíma hefur forsetinn lagt mikla áherslu á að Kennedy Center verði nefnt eftir honum.

Hann hótaði …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár