Kosningaauglýsing Þjóðmála pöntuð fyrir Áfram Ísland

Aug­lýs­ing undir merkjum fjöl­mið­ils­ins Þjóðmála á Rík­is­út­varp­inu var pöntuð á kenni­tölu Áfram Ísland, sam­kvæmt svörum frá RÚV. Þar var varað við hættu af raf­orku­sæ­streng frá ESB og vísað til sæstrengs til Kýpur, sem eyjan hefur þrýst á að fá og fjár­magnað að hluta.

Kosningaauglýsing Þjóðmála pöntuð fyrir Áfram Ísland
Halldór Benjamín Þor­bergs­son Pró­kúru­hafi og stjórn­ar­for­maður Áfram Ísland er jafn­framt for­stjóri fast­eigna­fé­lags­ins Heima. Mynd: Golli

Aug­lýs­ing sem merkt var hlað­varpsmiðl­inum Þjóð­málum dag­ana fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald aðild­ar­við­ræðna Íslands við Evr­ópu­sam­bandið var pöntuð fyrir sam­tökin Áfram Ísland. Þetta kemur fram í svörum Rík­is­út­varps­ins.

„Segjum nei við fram­sali íslenskra orku­auð­linda. Segjum nei við ESB,“ sagði í aug­lýs­ing­unni, áður en hún var merkt: „Þjóðmál.“ Þar er um að ræða hægri sinn­aðan Hlað­varps­þátt í eigu Gísla Freys Val­dórs­sonar.

„Áfram Ísland stóð að við­kom­andi aug­lýs­ingu,“ segir Einar Logi Vign­is­son, aug­lýs­inga­stjóri RÚV. 

Samkvæmt svörum sam­tak­anna Áfram Ísland neita þau að hafa keypt aug­lýs­ing­una.

Vara við sæstreng sem Kýpur vill fá

Í aug­lýs­ing­unni var varað við „raun­veru­legri hættu“ á því að Evr­ópu­sam­bandið stæði að lagn­ingu sæstrengs fyrir raf­orku til Íslands. „Íslensk orka myndi streyma úr landi, raf­orku­verð hækka og þrýst­ingur myndi aukast á að virkja íslenska nátt­úru til að mæta orku­þörf Evrópu,“ sagði í leik­les­inni aug­lýs­ingu. Vísað var til þess að ESB hefði unnið að sam­teng­ingu …

Kjósa
61
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Jæja, nú hefur sannleikur málsins verið leiddur í ljós.

    https://www.visir.is/g/20262933347d/segir-afram-island-ekki-hafa-borgad-fyrir-auglysingu-thjodmala

    Eigandi birtingarhúss sem bókaði auglýsingar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í síðasta mánuði segir að Áfram Ísland hafi ekki greitt fyrir auglýsingu í nafni hlaðvarpsins Þjóðmála. Auglýsing á RÚV hafi verið misskráð á kennitölu Áfram Íslands.

    Diðrik Örn Gunnarsson, eigandi Ratsjá Media, staðfestir í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis að Þjóðmál hafi borið kostnað af auglýsingum sem voru birtar í nafni hlaðvarpsins.

    „Áfram Ísland greiddi ekki fyrir þær auglýsingar,“ segir í svari hans.

    - Nú verður fróðlegt að sjá hvort Heimildin birtir aðra frétt með réttum staðreyndum.
    -1
  • Jökull Einarsson skrifaði
    Mættuð athug hver auglýsti á Ruv að jeppabreytingar yrðu bannaðar ef við segðum já var auglýst á,kosningadaginn
    4
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Jæja, þá hið rétta ljós Nei-liða komið í ljós ! Stefán Pálsson og Sólveig Anna eru í stjórn samtakana , sem hafa kostað til mörg hundruð milljónum í lygar og ómerkilegheit ! Gott þá vitum við það !
    6
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Þú vilt semsagt stimpla alla fullveldissinna með sama stimpli. Málefnalegt?

      Hvað með lygarnar og ómerkilegheitin sem félög lesblindra og hveilaþveginna kostuðu til útbreiðslu á? Ekki ámælisvert ef það var gert fyrir þá skoðun sem þú telur "rétta"?

      Hefði þá ekki allt eins mátt panta auglýsingu á kennitölu Evrópuhreyfingarinnar þess efnis að í Evrópusambandinu hafi allar lífins gátur verið leystar og allir prumpi glimmeri?
      -11
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Ég gæti semsagt pantað auglýsingu hjá RÚV á kennitölu einhvers annars en til þess að auglýsa eitthvað í mínu eigin nafni? Auglýsing pöntuð á kennitölu Sigurðar: "Verslið við Guðmund!"
    -8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár