Hvað gerðist í kosningabaráttunni?

Villandi mál­flutn­ingur, óvægin umræða og lélegir fjöl­miðlar eru á meðal þess sem situr í tals­fólki og kosn­inga­stjórum eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una um ESB.

Hvað gerðist í kosningabaráttunni?
Frá Aust­ur­velli Áfram Ísland hélt bar­áttufund skömmu fyrir kosn­ingar þar sem meðal ann­ars Katrín Jak­obs­dóttir lýsti yfir and­stöðu sinni við aðild­ar­við­ræður við ESB. Mynd: Golli

Fjöl­miðlar brugð­ust, ósann­indi fengu að standa og Íslend­ingar eru búnir að fara í gegnum fyrstu kosn­inga­bar­átt­una þar sem megn upp­lýs­inga­óreiða ein­kenndi umræð­una fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una um áfram­hald á aðild­ar­við­ræðum við ESB.

Þetta er meðal ann­ars nið­ur­staða for­svars­fólks hreyf­inga sem börð­ust um atkvæði almenn­ings í kosn­ing­unum. Kosn­inga­bar­áttan kost­aði sam­an­lagt á annað hund­rað millj­ónir og skipt­ist nokkuð jafnt á milli stærstu hreyf­ing­anna, þótt Áfram Ísland hafi eytt meira, þó ekki nálægt þeim 300 millj­ónum króna sem var slengt fram í ágúst, að þeirra eigin sögn.

Bæði Áfram Ísland og Já til að sjá segja orð­ræð­una svo óvægna að fólk hafi veigrað sér við að taka þátt í henni og það sitji í fólki.

„Ég held að það sé ein af stærri sögum bar­átt­unnar, að ungt fólk mætti vel á kjör­staði og var meira á nei-inu“
Andri Steinn Hilm­ars­son
annar kosn­inga­stjóra Áfram Íslands
…
Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Það sem gerðist var að peningavaldið vann og almenningur lét blekkjast af áróðinum og tapaði möguleika á betri lífskjörum til framtíðar ef samningurinn hefði orðið nógu góður. Nú eru lán á Íslandi til húsnæðiskaupa með þrefalds hærri vexti en á ESB löndunum Danmörku og Svíþjóð 9-11 % (eða hærri) en sirka 3 % í ESB löndunum Danmörk og Svíþjóð. Hvað með unga fólkið sem er að reyna að eignast húsnæði en getur það ekki nema eiga efnaða aðstandendur sem vilja hjálpa þeim. Tryggingar kosta miklu meira hér en t.d. í Svíþjóð. Velferðakerfið er mun betra í Danmörku en hér. Þó hafa danir engar auðlindir en við höfum ein auðustu fiskimið í heimi, rafmagnið frá virkjunum í fallvötnum okkar sem er endurnýjanlegt og malar gull og svo heita vatnið sem malar einnig gull. Við ættum að hafa langbestu lífskjör í Evrópu. En það er ekki svo nema hjá hluta þjóðarinnar, eignafólkinu og þeim sem ráða nánast sínum launum sjálft og taka hluta þeirra sem fjármagnstekjur Stór hluti þjóðarinnar býr við mun lakari kjör en þeir verst settu í Danmörku búa við þrátt fyrir allar auðlindirnar sem við höfum fram yfir dani. Svo er sagt að hvergi sé meiri launajöfnuður en hér. Svo kallaðar fjármagnstekjur eru þar ekki teknar með í dæmið en þær eru oft mun meiri en launatekjur sbr hátekjublaðið. Mér skil ekki fólk eins og Sólveigu Önnu og Ögmund að berjast fyrir að fá ekki að sjá samning. Þau eru að vinna gegn sínu fólki. Það var ekki verið að kjósa um samning heldur hvort það ætti að sjá samning.og kjósa svo um hann. Þau hafa kannski ekki átta sig á því ??? Það lítur ekki út fyrir það!
    2
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Eru talsmenn Já hreyfingarinnar fátæklingar?
      Er ekkert peningavald í Evrópusambandinu?
      0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Heimildin slær upp orðunum "Vill­andi mál­flutn­ing­ur, óvæg­in um­ræða" í undirfyrirsögn og undir henni mynd frá fundi talsmanna eins sjónarmiðs en ekki hins. Engin slagsíða hér?
    0
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    If the campaign failed to meet democratic and ethical standards it would only be democratic and ethical to repeat the campaign!?
    0
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      If you think the election was rigged, Article 129 of the Election Act provides:
      "Complaints regarding the illegality of a presidential election or national referendums—other than criminal complaints—shall be submitted to the Election Complaints Committee for resolution no later than seven days prior to the meeting referred to in Article 120."

      The meeting referred to in Article 120 will be held on 22 September 2026:
      https://island.is/v/thjodaratkvaedagreidsla-2026/frett/urskurdarfundur-landskjorstjornar-vegna-thjodaratkvaedagreidslu-29-agust-2026

      Seven days prior is 15 September so you now have 4 days to submit your complaint.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár