Vilja skriflega staðfestingu á að Ísland sé ekki umsóknarríki að ESB

Guðrún Haf­steins­dóttir, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Stefán Vagn Stef­áns­son leggja til að rík­is­stjórnin til­kynni Evr­ópu­sam­band­inu að engin aðild­ar­um­sókn frá Íslandi liggi fyrir. Sam­bæri­leg til­laga var áður flutt af Ingu Sæland á sex lög­gjaf­ar­þingum án þess að hljóta afgreiðslu.

Vilja skriflega staðfestingu á að Ísland sé ekki umsóknarríki að ESB
Nei Sig­mundur Davíð og Guðrún börð­ust saman fyrir því að þjóðin segði nei við við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið. Mynd: Golli

Leið­togar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á Alþingi vilja fela rík­is­stjórn­inni að til­kynna Evr­ópu­sam­band­inu „með skýrum og ótví­ræðum hætti“ að Ísland sé ekki umsókn­ar­ríki. Þau vilja svo að rík­is­stjórnin fái skrif­lega stað­fest­ingu frá Evr­ópu­sam­band­inu á að svo sé.

Þetta er efni stuttrar og snarprar þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Guðrúnar Haf­steins­dóttur, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, og Stefáns Vagns Stef­áns­sonar, þing­flokks­for­manns Fram­sóknar, um stöðu Íslands gagn­vart ESB.

Í grein­ar­gerð til­lög­unar vísa þre­menn­ing­arnir til þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar 29. ágúst síð­ast­lið­inn um hvort hefja ætti aðild­ar­við­ræður að nýju. Þeir túlka nið­ur­stöð­una sem vilja þjóð­ar­innar til þess að Ísland sé ekki heldur umsókn­ar­ríki.

„Það liggur í hlut­ar­ins eðli að ríki sem vill ekki aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið, og enn síður ger­ast aðili að því, á ekki að vera umsókn­ar­ríki um aðild að sam­band­inu,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Í grein­ar­gerð­inni er rifjað upp að utan­rík­is­ráð­herra, í rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks, hafi árið 2015 til­kynnt ESB að rík­is­stjórnin hygð­ist ekki …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ML
    Maja Loebell skrifaði
    Greinin er góð, gott að fá þessa heimsku (? eða hvað sem veldur) fram á prenti.
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    NEI við aðildarviðræðum er NEI við aðild og þegar við sögðum það þá meintum við það!
    -7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár