Helgi Hrafn: Vanhæfni, óheiðarleiki, afneitun og valdablinda
Formaður Pírata er harðorður í garð Hönnu Birnu Kristjánsdóttur: „Hún gerði lítið úr málinu, sagði Alþingi ósatt, misnotaði rekstrarfélag ráðuneytanna til hvítþvottar og hafði í hótunum við lögreglustjórann sem rannsakaði málið“.
FréttirLekamálið
Hanna Birna fundaði með ritstjóra í ráðherrabílnum
Hittust leynilega tveimur dögum eftir að Gísli lak upplýsingum til Haraldar
Fréttir
Luxury Adventures í rannsókn hjá sérstökum saksóknara
Ólafur Helgi Þorgrímsson, framkvæmdastjóri Luxury Adventures og skráður forstöðumaður trúfélagsins Zuism var færður í gæsluvarðhald fyrir nokkrum mánuðum. Að sögn heimilda snýst málið um peningaþvott.
Fréttir
Dularfyllsta trúfélag á Íslandi verður brottfellt á næstunni
Aðeins þrír eru skráðir í trúfélagið Zuismi á Íslandi. Svo virðist sem meðlimir tilbiðji fornsúmerska guði. Skráður forstöðumaður rekur lúxusferðafyrirtæki.
FréttirLekamálið
Tony Omos fékk tæpa milljón
Gísli Freyr Valdórsson hefur samið við bæði Tony Omos og Evelyn Glory um bætur vegna lekans. Til skoðunar að lögsækja íslenska ríkið.
FréttirLekamálið
Leynd yfir fundum og símtölum ráðherrans
Hanna Birna fundaði með ritstjóra Morgunblaðsins í ráðherrabílnum eftir lekann. Dagbók horfin og formleg samskipti ekki skráð í málaskrá.
FréttirLekamálið
Gísli Freyr vann hjá GAMMA
„Hann er svo mikið inn og út hérna,“ segir starfsmaður GAMMA.
FréttirLekamálið
Tony með sáttatilboð frá Gísla Frey
Flóttamaðurinn íhugar tilboðið á Ítalíu. Evelyn tók sáttaboði aðstoðarmannsins fyrrverandi. Fordæmi um 500 þúsund í bætur.
FréttirLekamálið
Frásögnum Gísla Freys og Sigríðar Bjarkar ber ekki saman
Enn óljóst hvenær gögnin voru send og hver átti frumkvæði að samskiptunum
FréttirLekamálið
Lögreglustjóri ósammála Persónuvernd um lögbrot
Stundin rýnir í úrskurð Persónuverndar og yfirlýsingu Sigríðar Bjarkar
FréttirLekamálið
Villandi ummæli í tilkynningu Sigríðar Bjarkar
Lögreglustjóri þrætir fyrir að hafa brotið lög. Niðurstaða Persónuverndar skýr.
Fréttir
Lögreglustjórinn gæti þurft að svara til saka
Braut lög þegar hún miðlaði viðkvæmum persónuupplýsingum um hælisleitendur
Jón Baldvin við nemanda: „Viltu hitta mig eftir næsta tíma“
Fimmtán ára stúlka í Hagaskóla hélt dagbók vorið 1970 þar sem hún lýsir kynferðislegum samskiptum við Jón Baldvin Hannibalsson sem þá var 31 árs gamall kennari hennar. Í bréfi sem hann sendi stúlkunni segist hann vilja stinga af frá öllu og liggja í kjöltu hennar.
2
Viðtal
3
Þar sem ósýnilega fólkið býr í borginni
„Þetta var öruggasti staðurinn minn,“ segir Alma Lind Smáradóttir þegar hún opnar inn í ruslageymslu í bílakjallara í Reykjavík. Þarna bjó hún hluta þeirra þriggja ára sem hún þvældist um götur bæjarins. Borgin sést í öðru ljósi þegar hún er séð með augum heimilislausra, ósýnilega fólksins, þeirra sem flestir líta fram hjá eða hrekja burt. Ítarlegt og einlgæt viðtal við Ölmu Lind birtist í 162. tölublaði Stundarinnar og má lesa í heild á slóðinni: https://stundin.is/grein/16051/
3
Viðtal
4
„Ég get ekki lifað við þessa lygi“
Sigurlaug Hreinsdóttir segir lögregluna hafa brugðist þegar dóttir hennar hvarf fyrir fimm árum síðan. Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu gerir fjölmargar athugasemdir við framgöngu lögreglu í málinu og beinir tilmælum um úrbætur til ríkislögreglustjóra. „Ég biðst einlægrar afsökunar,“ skrifar Grímur Grímsson, sem var hampað sem hetju og tók á móti viðurkenningu sem maður ársins. „Það var ótrúlega sárt,“ segir Sigurlaug. Sér hafi verið fórnað fyrir ímynd lögreglunnar.
4
Menning
2
Þóra Dungal fallin frá
Þóra Dungal, sem varð táknmynd X-kynslóðarinnar á Íslandi skömmu fyrir aldamótin þegar hún fór með aðalhlutverk í kvikmyndinni Blossa árið 1997, er fallin frá.
5
Fréttir
14
„Hann hefur ekki beðist afsökunar“
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, sem kallar sig Auður, hefur viðurkennt að hafa farið „yfir mörk“ í samskiptum við konur. Konur lýsa ágengni og meiðandi framkomu sem hann hafi aldrei axlað ábyrgð á.
6
Viðtal
12
Lifði af þrjú ár á götunni
Alma Lind Smáradóttir endaði á götunni eftir að hún missti son sinn frá sér. Þar þvældist hún um í þrjú ár með sár sem náðu aldrei að gróa. Þegar hún varð barnshafandi á ný mætti barnavernd á fæðingardeildina og fór fram á að hún myndi afsala sér barninu.
7
Afhjúpun
3
„Hann var ekki að kaupa aðgengi að mér þegar hann lánaði mér pening“
Katrín Lóa Kristrúnardóttir þóttist heppin þegar henni var tjáð af vinnuveitanda sínum, Helga Vilhjálmssyni í Góu, að hann gæti lánað henni fyrir útborgun í íbúð. Hún hefði þó aldrei þegið slíkt lán ef hún hefði vitað hvað það hefði í för með sér en Katrín Lóa lýsir því að eftir lánveitinguna hafi hún þurft að sitja undir kynferðislegri áreitni Helga svo mánuðum skipti. Helgi biður Katrínu Lóu afsökunar á framferði sínu.
8
Úttekt
8
Mata-veldið: Skattaundanskot og samkeppnisbrot í skjóli ríkisins
Mata-systkinin og fyrirtæki þeirra hafa ítrekað verið gerð afturreka með viðskiptafléttur sem fólu í sér að koma mörg hundruð milljóna hagnaði undan skatti. Á sama tíma og fyrirtæki fjölskyldunnar byggja hagnað sinn á sölu matvæla undir tollvernd, hafa þau greitt háar sektir fyrir samkeppnisbrot og lagst í ómælda vinnu við að komast undan því að greiða skatta hér á landi, með viðskiptafléttum í gegnum þekkt skattaskjól.
9
Viðtal
Skutlað sextán ára til fanga á Litla-Hrauni: „Ég var alltaf hrædd“
Ingibjörg Lára Sveinsdóttir var sextán ára þegar henni var ekið á Litla-Hraun í heimsóknir til manns sem afplánaði átta ára dóm fyrir fullkomna amfetamínverksmiðju. Hún segir sorglegt að starfsfólk hafi ekki séð hættumerkin þegar hún mætti. Enginn hafi gert athugasemd við aldur hennar, þegar henni var vísað inn í herbergi með steyptu rúmi þar sem hennar beið töluvert eldri maður með hættulegan afbrotaferil.
10
Erlent
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Þín áskrift hefur áhrif
Almenningur hefur viðhaldið Stundinni og Kjarnanum með áskriftum og styrkjum síðan 2013. Með því að kaupa áskrift að Heimildinni styrkir þú sjálfstæða rannsóknarblaðamennsku.