Gísli Freyr vann hjá GAMMA

„Hann er svo mikið inn og út hérna,“ segir starfs­maður GAMMA.

Gísli Freyr Val­dórs­son starf­aði hjá fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu GAMMA í þrjár vikur í síð­asta mán­uði. Hann var dæmdur í nóv­em­ber s.l. í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir hafa lekið trún­að­ar­upp­lýs­ingum um Tony Omos til fjöl­miðla í nóv­em­ber árið 2013. Rétt fyrir ára­mót fór hann einn túr með skut­tog­ar­anum Dala-Rafni VE 508.

Gísli Freyr er með BA-gráðu í stjórn­mála­fræði, en hann starf­aði við texta­gerð hjá GAMMA vegna afmark­aðs verk­efnis. Gísli Hauksson, for­stjóri GAMMA, segir að hann muni ekki hafa var­an­lega atvinnu hjá fyr­ir­tæk­inu. Óljóst er þó hvort honum muni bjóð­ast annað verk­efni á næstu miss­erum. 

Stundin gerði til­raun til að ná tali af Gísli Frey hjá GAMMA en skipti­borðið tjáði blaða­manni að dæmdi aðstoð­ar­mað­ur­inn væri í fríi í dag. „Hann er svo mikið inn og út hérna,“ segir starfs­maður GAMMA. Gísli Hauksson segir ástæðu þess vera að Gísli Freyr komi öðru hvoru á skrif­stof­una vegna frá­gangs við skýrsl­una.

Stundin greindi nýverið frá því að Tony Omos hafi fengið sátta­til­boð um bóta­greiðslu frá Gísla Frey vegna leka­máls­ins. Lögmaður Tony Omos, Stefán Karl Krist­jáns­son, vill ekki upp­lýsa hvaða upp­hæð Gísli Freyr hafi boðið. Sátt hefur náðst í máli Evelyn Glory Joseph um skaða­bætur. Líklegt er að Gísli Freyr muni þurfa að greiða í heild­ina um tvær millj­ónir króna í bætur, en þolendur í leka­mál­inu eru þrír.

GAMMA hefur verið mjög umsvifa­mikið bæði á fjár­mála- sem og fast­eigna­mark­aði. Sjóð­ur­inn á mörg hund­ruð íbúðir í miðbæ Reykja­víkur og stendur að baki nýstofn­uðum náms­lána­sjóði, Fram­tíð­inni, sem býður náms­mönnum upp á lán sem hafa umtals­vert hærri vexti en LÍN býður upp á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár