50 milljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal

Oddviti Sam­fylk­ing­ar­innar gagn­rýnir for­gagns­röðun meiri­hlut­ans sem ætlar að verja 50 millj­ónum í nýja stóla og skjá inn í borg­ar­stjórn­ar­sal á sama tíma og miklar aðhalds­að­gerðir standa yfir.

50 milljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal
Borg­ar­stjórn Hér má sjá nýja odd­vita og gamlan stól í bak­grunni. Mynd: Golli

Borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar gagn­rýnir sér­stak­lega í bókun á fundi borg­ar­stjórnar í gær að meiri­hlut­inn hafi bætt við 50 millj­ónum í stóla­kaup og LED-skjái í borg­ar­stjórn­ar­sal­inn á sama tíma og mikið aðhald er í rekstri borg­ar­innar, þar sem meðal ann­ars fjöl­mörgum hefur verið sagt upp á ýmsum sviðum og deildum.

Bókunin er í tengslum við við­auka í fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar fyrir árið 2026 og var kynnt á fundi borg­ar­stjórnar á þriðju­dag.

Verkefni sem valið er að verja

„Viðaukar við fjár­fest­inga­á­ætlun gefa ágætis vís­bend­ingu um hvaða verk­efni meiri­hlut­inn velur að verja og hvað hann lætur mæta afgangi,“ segir í bókun odd­vita Sam­fylk­ing­ar­innar, Péturs H. Mart­eins­sonar. Því næst segir:

„Í þessum við­auka við fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar 2026 lækkar fjár­fest­ing í leik­skólum um 168 millj­ónir króna, end­ur­nýjun mötu­neyta í leik­skólum verður engin og hverfa­pottar, sem íbúar ráð­stafa sjálfir í gegnum verk­efnið Betri hverfi, eru skornir niður um helm­ing. Á sama tíma bæt­ist við …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár