Valdimar varar við að leita sökudólgs í Tækniskólamálinu

Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar, Valdimar Víðisson, lýsti von­brigðum með nið­ur­stöðu Tækni­skóla­máls­ins á fyrsta bæj­ar­stjórn­ar­fundi eftir að ljóst var að Tækni­skól­inn kæmi ekki í bæinn. Hann hefur ekki viljað svara spurn­ingum um málið.

Bæjarstjóri
Bæj­ar­stjóri Valdimar var bæj­ar­stjóri hluta síð­asta kjör­tíma­bils.

Valdimar Víðisson, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar og odd­viti Fram­sóknar í bænum, var­aði við því í ræðu á bæj­ar­stjórn­ar­fundi að leita söku­dólgs vegna þess að áform um upp­bygg­ingu Tækni­skól­ans í Hafn­ar­firði gengu ekki eftir. Hann sagði verk­efnið hafa verið stórt og flókið og samn­inga við lóð­ar­hafa tekið lengri tíma en gert hefði verið ráð fyrir. 

Valdimar sat sjálfur í meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar meðan málið var í vinnslu og var bæj­ar­stjóri frá 2025 fram að sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum síð­ast­liðið vor. Þegar Heim­ildin leit­aði svara hans um lyktir máls­ins, meðal ann­ars um ákvarð­anir hans sem bæj­ar­stjóra, vildi hann ekki svara spurn­ing­unum.

Í ræð­unni sagði Valdimar mik­il­vægt að nálg­ast nið­ur­stöð­una af sann­girni. „Þegar stór verk­efni ná ekki fram að ganga eins og stefnt var að er auð­velt að reyna að leita söku­dólgi eða einni ein­faldri skýr­ingu. …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Maria Maack skrifaði
    Já um að gera að skoða ekki nánar greiðslur fyrir dásamlegar ráðgjöf sem ekki urðu til neins. Einskis nýtar ráðleggingar fyrir milljónir. Svaka sætt.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tækniskólamálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár