Viðræður að hefjast um nýjan Tækniskóla í Reykjavík

Borg­ar­ráð hefur skipað við­ræðu­hóp til að semja við Tækni­skól­ann um að skól­inn hald­ist í Reykja­vík. Hafn­ar­fjörður hafði áður samið við skól­ann um lóðir til upp­bygg­ingar en reynd­ist svo ekki geta afhent þær.

Viðræður að hefjast um nýjan Tækniskóla í Reykjavík
Úr mið­borg­inni Tækni­skól­inn hefur nú meg­in­hluta starf­semi sinnar á Skóla­vörðu­holt­inu en lík­legt má telja að skól­inn flytji í úthverfi borg­ar­innar. Mynd: Shutterstock

Borg­ar­ráð sam­þykkti í gær að skipa við­ræðu­hóp með umboð til að semja við Tækni­skól­ann og Skóla­stræti ehf. um upp­bygg­ingu nýs tækni­skóla í Reykja­vík. Með ákvörð­un­inni er stigið skref í átt að því að skól­inn verði áfram í borg­inni eftir að áform um flutn­ing til Hafn­ar­fjarðar gengu ekki eftir.

Skólinn átti að flytja úr Reykja­vík til Hafn­ar­fjarðar en samn­ingum var rift þegar Hafn­ar­fjarð­ar­bær gat ekki tryggt honum lóð­irnar sem honum hafði verið lofað. Í kjöl­farið keppt­ust bæj­ar­stjórar víða um land við að bjóða skól­ann vel­kom­inn í sín sveit­ar­fé­lög.

Nú stefnir í form­legar við­ræður um að fram­tíð­ar­stað­setn­ing skól­ans verði í Reykja­vík. Ekki kemur fram í sam­þykkt borg­ar­ráðs hvar nýr skóli yrði reistur, en upp­bygg­ingin myndi fela í sér flutn­ing af Skóla­vörðu­holt­inu.

„Með skipan við­ræðu­hóps er nú stigið mik­il­vægt skref í þá …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Maria Maack skrifaði
    Mikið er það ánægjulegt að tækniskólanum bjóðist að vera í Reykjavík. Hefur aldrei komið til greina að byggja slíkan skóla með topp-tengingu við almenningssamgöngur?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tækniskólamálið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár