Fimm ár dugðu ekki til að semja um lóðir Tækniskólans

Meiri­hlut­inn var ítrekað var­aður við seina­gangi í lóða­samn­ingum sem dróg­ust í fimm ár. Tækni­skól­inn hefur nú hætt við upp­bygg­ingu í Hafn­ar­firði og íhugar fjár­kröfu á hendur bænum.

Fimm ár dugðu ekki til að semja um lóðir Tækniskólans
Búið Tækni­skól­inn átti að rísa á hafn­ar­svæð­inu í Hafn­ar­firði en eftir margra ára við­ræður og við­vör­un­ar­bjöllur minni­hlut­ans í bæj­ar­stjórn þarf skól­inn að finna sér nýjan stað. Mynd: Wikimedia Commons

Fund­ar­gerðir Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar sýna að meiri­hluti Fram­sóknar- og Sjálf­stæð­is­flokks ýtti ítrekað á undan sér grund­vall­ar­vand­anum varð­andi lóða­kaup í tengslum við Tækni­skól­ann, sem var að klára samn­inga við lóð­ar­hafa. Kostn­að­ur­inn átti að vera 4,1 millj­arður en verk­efnið fór út um þúfur eftir að samn­ingar tók­ust ekki, eftir fimm ára vinnu og ítrek­aðar við­var­anir minni­hlut­ans.

Meiri­hlut­inn sam­þykkti deiliskipu­lag vegna skól­ans í upp­hafi þessa árs, þrátt fyrir  að ekki var búið að semja um kaup á lóðum undir upp­bygg­ingu skól­ans. Minni­hlut­inn, undir for­ystu Sam­fylk­ing­ar­innar, benti ítrekað á seina­gang í mál­inu.

Nið­ur­staðan er sú að Tækni­skól­inn mun ekki rísa í Hafn­ar­firði eftir margra ára und­ir­bún­ings­vinnu og komu frétt­irnar flatt upp á bæj­ar­búa. Það er þó ljóst sam­kvæmt fund­ar­gerðum í hvað stefndi. Minni­hlut­inn var­aði marg­sinnis við hæga­gangi meiri­hlut­ans í samn­inga­við­ræðum við lóð­ar­hafa á svæð­inu.

Óvenjuleg staða

Árið 2024 voru uppi skýrar vís­bend­ingar um að meiri­hlut­inn væri að renna út á tíma ætl­aði hann að ná að …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tækniskólamálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár