Lýðræði og mannréttindi eiga undir högg að sækja, það er margt að varast, margt að verja og margt sem þarf að gera. Við þurfum að opna augun og eyrun og læra aftur á áttavitann.
Valdamiklir menn ásamt ríkasta prósenti jarðarbúa leiða nú ógæfu yfir lífið á jörðinni. Þetta hljómar dramatískt en hluti þeirra sem hafa völdin um þessar mundir er herskár og gráðugur. Restin virðist of lin og veik til að snúa þróuninni við og virðist ekki horfast í augu við það sem er að gerast. Almenningur hefur því verk að vinna.
Hverjum klukkan glymur
Hversu oft þarf klukkan að glymja? Er 40 stiga hiti á sumrin í Evrópu ásamt skógareldum ekki nægilega sterk viðvörun? „Með eyrum munuð þér heyra og alls ekki skilja og sjáandi munuð þér horfa og ekkert sjá.“ Það eru greinileg teikn á lofti en það er eins og við viljum ekki taka eftir þeim. Ekki hjálpar ójafnvægið sem mannlegt skeytingarleysi hefur skapað í náttúrunni, til dæmis vegna eyðingar frumskóga vegna akuryrkju eða nautgriparæktar.
Um leið og andlýðræðislegir flokkar skynja veikleika og óstöðugleika í samfélaginu, nýta þeir sér það til að efla völd sín. Takist þeim það liggur leiðin niður á við fyrir okkur öll. Enginn er óhultur ef slíkir aðilar ná völdum, ekki einu sinni þau sem fylgja þeim að málum. Þeir hafa hagnýtt sér það sem okkur er dýrmætast, eins og málfrelsi, til að spilla og sundra friðsamlegu samfélagi og fá fólk til að efast um vísindalegar niðurstöður.
„Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma.“ Við verðum að vera reiðubúin til að verja gæðin, þekkja verðmætin, virða aðra. Gefum okkur því tíma til að sjá og taka eftir, til að hlusta á tóninn og skynja. Um þessar mundir eru áreitin eins og örvadrífa úr öllum áttum og við vitum ekki hvert ber að horfa. Hættan, ógnin, leynist oft þar sem ekki er gert ráð fyrir henni.
Illska er lævís í eðli sínu, við þekkjum verk hennar úr sögunni, við ákveðin skilyrði eyða liðsmenn hennar öllu sem verður á vegi þeirra. Það er alltaf hætta á endurkomu hennar, sérstaklega þegar hún holdgervist í harðstjórum. Nefna má harðstjórann í Moskvu, sem spýr eitri yfir Evrópu og lætur drepa sérhvern dag, óbreytta borgara, hermenn, jafnt eigin lands sem annarra. Annar harðstjóri er í Tel Aviv – og þeir eru fleiri.
Helstu þættir sem hrintu heimsstyrjöldinni af stað árið 1939 eru til staðar um þessar mundir. Nokkrir harðstjórar okkar tíma hafa náð völdum en þeir nýta sér gjarnan lýðræðislega hefð til að byggja undir eigin stöðu, skapa ójafnvægi og taka sér alræðisvald.
Verkefnið er að greina merkin. Í bókinni The Nazi Mind eftir Laurence Rees (Penguin, 2025) er gerð grein fyrir tólf þáttum sem nauðsynlegt er að taka eftir og hugsa um. Þessi tákn veita innsýn í hvernig harðstjórn nær völdum. Svo er önnur bók sem nefnist Allt um ástina eftir bell hooks (HÍB, 2025) þar sem finna má lausnir með hjálp ástar og kærleikans. Undir áhrifum þessara bóka skrifa ég þessa grein.
Í hnotskurn
Valdhafi sem þykist vera hetja velur óvin, afmennskar hann, breiðir út samsæriskenningar og skiptir veruleikanum í okkur og hina. Valdahópar í samfélaginu sjá sér hag í að styðja valdhafa sem nýtir sér svo trúgirni fylgismanna. Fljótlega er dregið úr almennum mannréttindum og mótmælendur eru handteknir. Aðgangur æskunnar og nemenda í háskólum að efni og staðreyndum er takmarkaður og fylgst er með tjáningu þeirra og skoðunum. Ýtt er undir rasisma og bilið breikkað á milli æskilegra og óæskilegra hópa í daglegu lífi og starfi. Valdhafinn hefur nú skapað samfélag haturs og ótta og illskan verður sýnileg. Nú er til dæmis leyfilegt að drepa „óvininn“ úr fjarlægð.
1 Að breiða út samsæriskenningar
Samsæriskenningar eru öflugt tæki til að afvegaleiða, svo fólk horfi annað, heyri annað, án þess að skilja hvað sé að gerast í raun og veru, fyrir allra augum.
Öfl sem grafa undan lýðræðinu, búa til óvini og ógn. Algengt er að gera útlendinga, flóttafólk og innflytjendur að blórabögglum, trúarhópa, jaðarhópa, þau sem ekki eru gagnkynhneigð eða hvít á hörund … Það er gert til að hylma yfir eigin veikleika og minnimáttarkennd.
Kenning er smíðuð um að tiltekinn hópur muni eyðileggja samfélagið, ná völdum og hrifsa til sín auðæfin. Nasistar völdu gyðinga og beindu sjónum að þeim þar til lýðurinn tók að hata þá og afmennska. Á meðan athyglin beindist að þeim tóku nasistar völdin og auðæfin sjálfir og kúguðu þjóðina alla. Þeir voru sjálfir óvinurinn – fyrir allra augum – en ekki gyðingar. Of fáir sáu það, því athyglinni var sífellt beint annað.
Þetta er viljinn í Moskvu núna gagnvart Úkraínu og viljinn í Tel Aviv gagnvart Palestínu, þjóðarmorð fyrir allra augum.
2 Við og hinir
Þróunarsaga heilans vitnar um að manneskjan þurfi að vera fljót að bregðast við til að lifa af, flokka áreiti og draga ályktanir. Þá er líka auðvelt að bregðast rangt við, það er því ævilangt verkefni fyrir nútímafólk að yfirvinna þessa áráttu hugarfarsins til að draga úr fordómum sínum gagnvart hinu ókunna og „framandi“. Harðstjórar búa til ógnir og hræða fólk með þeirri ranghugmynd að „hinir“ muni hirða gæðin frá þeim. Þetta leiðir til ofbeldis, útilokunar og óréttlætis.
Leiðtoginn tekur svo sitt fólk undir sinn verndarvæng og hópurinn fer að vinna gegn „hinum“ – og það sem fer úrskeiðis verður þeim að kenna. Boð eru látin ganga út um að öryggi felist í einhæfni, að fjölbreytni trufli og valdi ringulreið. Hér er gengið rangsælist til verka því það er einmitt margbreytileikinn sem tengir fólk saman og hjálpar því að finna sig í öðrum.
3 Að þykjast vera hetja
Væntanlegir harðstjórar draga gjarnan upp mynd af sér sem hetjum, telja fylgjendum trú um að þeir séu snillingar. En yfirleitt eru þeir helst góðir í að tímasetja sig og stíga fram á ögurstundu til að reisa flaggið sitt. En þeir eru engar hetjur ef kíkt er undir yfirborðið. Þeir eru fyrst og fremst hræddir eða siðlausir blekkingameistarar.
4 Að spilla æskunni
Sókrates vildi kenna æskunni gagnrýna hugsun en var sakaður um að spilla henni og vekja efasemdir um guði Aþenuborgar. Hann vildi opna huga hennar og efla ímyndunarafl. Harðstjórar aftur á móti vilja hið gagnstæða, vilja stjórna og móta unga fólkið. Þeim er illa við frjálsa fjölmiðla, menntafólk og gagnrýna hugsun.
Hitler, Pol Pot, Maó og fleiri harðstjórar 20. aldar mótuðu æskulýðinn til að þjóna sér, þetta er tilhneiging þeirra sem vilja verða allsráðandi. Ungt fólk fær ekki að heyra sannleikann eða önnur gild sjónarhorn, aðeins þeirra sannleika. Þau mega með öðrum orðum ekki mynda sér skoðun reista á staðreyndum.
5 Stuðningur annarra valdahópa
Oft hafa valdahópar sem eru til staðar í samfélaginu tilhneigingu til að styðja væntanlegan harðstjóra, því þeir álykta að hann muni þjóna þeim og vera vinur þeirra. Sitjandi forsetar, biskupar og forstjórar hafa stutt harðstjóra til valda – vegna þess að þeir telja það tryggja eigin valdastöðu. Það kemur þeim um koll, fyrr eða síðar.
6 Dregið úr mannréttindum
Sterkt einkenni væntanlegra harðstjóra er vilji til að mismuna. Öruggir um full mannréttindi eru helst hvítir kristnir, þjóðlegir, ríkir gagnkynhneigðir karlmenn sem vilja vera bæði normið og viðmiðið innan feðraveldis. Það sem er á skjön líta þeir hornauga. Það er segin saga að bakslag verður í réttindabaráttu jaðarhópa í andrúmslofti múghreyfinga.
Harðstjórar vænta hlýðni og þeir vilja útiloka efasemdir og gagnrýni. Þeir finna leiðina til að veikja lýðræðið og styrkja eigin stöðu. Þeir grafa undan frjálsum samtökum og öflugum fjölmiðlum til að takmarka tjáningarfrelsið.
7 Að nýta sér trúgirni annarra
Landsföðurlegir leiðtogar sem líta út fyrir að vera sterkir öðlast oft meira traust en þeir standa undir. Trúin á dómgreind leiðtoga sem þola enga gagnrýni er skaðleg, því þeir leggja niður stofnanir og koma öðrum á fót sem henta þeim betur. Þeir lofa sumum betri heimi og meira öryggi en hafna fjölbreytni og æðri menntun.
Harðstjórar af þessu tagi vekja falskar vonir borgaranna um að hægt sé að snúa aftur til gömlu góðu tímanna og að samfélagið verði aftur glæsilegt. „Ef þið fylgið mér, þá verður allt gott aftur.“ Það er gott dæmi um blekkinguna.
8 Gildi óvina
Harðstjórn þarfnast óvina. Ef þeir eru ekki til staðar þá þarf að búa þá til. Það gætu verið innflytjendur, minnihlutahópar, litaðir, samkynhneigðir, trúarhópar, önnur þjóð. Jafnvel vinaþjóðir eins og Bandaríkin og Kanada geta orðið óvinaríki fyrir tilstuðlan harðstjóra.
Harðstjórinn fullnægir græðgi sinni með því að drottna yfir í stað þess að deila með sér. Hann skilur ekki lögmálið að með því að gefa hvert öðru lærum við um leið að meta gagnkvæma hagsmuni. Hann skilur ekki heldur að hægt sé að læra að þiggja með því að gefa. Allt slíkt virðist vera lokuð bók fyrir harðstjórann. Gleðin fylgir alls ekki græðginni, heldur gjöfinni, og örlæti og fjölbreytni styrkir samfélagið.
Harðstjórinn sannfærir lýðinn um að bág staða sé öðrum að kenna. Hversu einfalt og ljótt bragð er það ekki? Að velja óvin, hræða, afmennska og hvetja aðra til að brjóta á honum.
9 Að útiloka mótmælendur
Harðstjórar sem hafa töglin og hagldirnar í hernum, ríkisstjórninni og trúarstofnunum, óttast helst uppreisn innan eigin raða. Íranska þjóðin er á milli margra elda. Klerkastjórnin finnur ekki til með henni fremur en Trumpstjórnin eða ríkisstjórn Ísraels. Þær hafa ekki nægan kærleika til að leysa hana úr ánauð og halda því áfram að kvelja hana.
Fjöldahreyfing almennings getur aðeins treyst á eigið hugrekki. Hún býr ekki yfir morðvopnum, heldur röddum og andlegum styrk. Við, í fjarska, getum veitt henni lið með því að hafna aðferðum harðstjóranna og gera þeim lífið leitt heima fyrir með gagnrýni, mótmælum og sniðgöngu.
10 Vaxandi rasismi
„Þeir og við“, „við og hinir“ þekkist væntanlega í öllum samfélögum og þessi flokkun getur haft skelfilegar afleiðingar sem illir leiðtogar nýta sér til fulls og hella olíu á eldinn.
Harðstjóri leysir vanda heima fyrir með því að skapa hatur milli sinna manna og hinna. Kennir hinum um ófarirnar, til dæmis atvinnuleysið, og veitir sínum hóp von og einhverja bitlinga. Að lokum eru nógu margir í hans liði reiðubúnir til að verjast og beita ofbeldi til að tryggja stöðu leiðtogans. Ef þessir fylgismenn telja sér trú um að þeir séu æðri en hinir, þá bætist við ný vídd sem illir leiðtogar nýta sér. Í afmennskunni verða morð réttlætanleg.
11 Að drepa úr fjarlægð
Fólk er drepið úr fjarlægð, ekki augliti til auglitis. Í seinni heimsstyrjöldinni í gasklefum, loftárásum á borgir og með því að varpa kjarnorkusprengjum á borgir. Nú er fólk, bara eitthvert fólk, drepið með drónum og öðrum skotflaugum.
Hús og híbýli eru lögð í rúst og í Úkraínu, Íran og Palestínu er saklaust fólk drepið úr fjarlægð með háþróaðri tækni og ofbeldismennirnir sitja í öruggu skjóli í öðru landi og fylgjast með á skjá. Hversu aumkunarvert er það! Hvað fer um huga þeirra? Ekki von um frið – heldur von um eigin sigur yfir andstæðingum sínum.
Rússar drepa óbreytta borgara, sama gera Íranir, Ísraelsmenn og Bandaríkjamenn og helsta skotmarkið verða friðsamir foreldrar og börn. Það er næg sönnun fyrir illskunni sem býr í leiðtogum þessara þjóða.
12 Kynt undir ótta
Leiðtogar með einræðistilburði beita ógnar- og óttastjórn. Þeir hræða lýðinn og nýta tækifærið sem þeim gefst í kreppu eða hamförum, svo herða þeir tökin og draga úr lýðræði og mannréttindum.
Það er beygur í brjósti, og óttinn er veikur blettur, því fólk leitar eftir öryggi. Samfélög geta fallið í þá gryfju að fylgja leiðtoga sem lítur út fyrir að vera sterkur og að geta verndað þau fyrir „óvini“ og veitt þeim öryggið.
Óttinn er manns eigin óvinur. Harðstjórar spila á þennan ótta, þennan veikleika. Þeir virðast þekkja hann og hlutverk hans í sögu mannsins. Síðan hrekja þeir hópa til að hata það sem þeir óttast – þar liggur glötunin og ofbeldið.
Lausnir á vandanum
Kærleikur er umbreytandi afl sem göfgar lífið en hatur og ótti valda eyðileggingu. Kærleikur og ótti fara ekki saman. Óttastjórnun vinnur gegn ástríku samfélagi.
Valdhafi sem ýtir undir ótta skapar óvild og sundrungu til að kalla fram hlýðni. Við megum ekki hika við að styðja við þau sem búa við undirokun og harðýðgi stjórnvalda.
Ótti er alls ekki í elskunni. Öryggið er ekki í einsleitni eða einhæfni, því þá verður frávik ógn sem þarf að útiloka. Að velja ást og kærleika er að velja margbreytileika og fjölbreytni – að velja að tengjast og vera saman. Ekki vera hrædd, ef við elskum þá óttumst við ekki, hjarta okkar rúmar ekki ótta.
Við skulum hafna orðum þeirra sem segja að ekki sé hægt að breyta neinu, að samfélagið verði alltaf á þennan sama veg með mismunun og óréttlæti. Að hvítir, ríkir karlar muni aldrei sleppa takinu af auði okkar og völdum sínum. Þetta er ekki rétt. Kærleikurinn er ótakmörkuð auðlind sem við höfum öll aðgang að.
Það er til önnur aðferð en að byggja upp hernaðarmátt, en að spúa eitri yfir aðra. Við þurfum að ganga saman annan veg. „Þegar við elskum þá hindrum við að óttinn haldi hjörtum okkar föngnum,“ skrifar bell hooks um mátt kærleikans og „Að gefa er græðandi fyrir andann. Ástin er athöfn, þátttökutilfinning … ástin er ástundun.“
Við þurfum að kunna að gera greinarmun á góðu og illu, læra að þekkja merkin og táknin og leggja kærleikanum lið.
Opnum augu og eyru og réttum hjálparhönd.



















































Athugasemdir