Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Hörður Arnarson lætur af störfum sem for­stjóri Lands­virkj­unar. Aðstoð­ar­for­stjóri tekur tíma­bundið við starf­inu.

Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Hörður Arnarson Hefur verið for­stjóri Lands­virkj­unnar um ára­bil. Mynd: Landsvirkjun

Hörður Arnarson er hættur sem for­stjóri Lands­virkj­unnar. Þetta var til­kynnt á starfs­manna­fundi Lands­virkj­unnar en til­kynn­ing hefur verið birt á vef Lands­virkj­unnar.

Kristín Linda Árna­dóttir, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar mun taka tíma­bundið við starfi for­stjóra frá og með 1. nóv­em­ber næst­kom­andi þar til nýr for­stjóri verður ráð­inn. 

Hörður tók við stjórn fyr­ir­tæk­is­ins síðla árs 2009, í miðju efna­hags­hruni, og á þeim 17 árum sem hann hefur gegnt starf­inu hafa orðið stakka­skipti á bæði rekstri Lands­virkj­unar og raf­orku­mark­aðnum á Íslandi.

Í til­kynn­ingu á vef Lands­virkj­unnar er haft eftir Herði: 

„Ég stíg bæði ánægður og stoltur frá borði eftir þessi sautján ár. Fyrst og fremst langar mig að þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum og átt þátt í þeim góða árangri sem við höfum náð fyrir Lands­virkjun og íslenskt sam­fé­lag – ekki síst starfs­fólki fyr­ir­tæk­is­ins. Það er ánægju­legt að skilja við Lands­virkjun jafn sterka og raun ber vitni.“

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helgi Hauksson skrifaði
    Vantar allt kjöt á þessa beinagrind. Hvað gerðist svo forstjórinn telur sig tilneyddan á brott fyrirvaralaust, með nú fyrst leyfi og svo nokkrum frágangsdögum?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár