Búið að ræða við öll vitni í tengslum við banaslys

Lögreglan hefur rætt við um tíu vitni sem voru á vettvangi þegar banaslys átti sér stað á Krýsuvíkur­vegi. Beðið er eftir niður­stöðum úr vettvangs­rannsókn.

Kletturinn
Klett­ur­inn Fjöl­margir lögðu leið sína á slys­stað og minnt­ust ung­menn­anna með blómum og kertum. Mynd: Golli

Lögreglan í Hafnar­firði hefur rætt við um og yfir tíu vitni í tengslum við banaslys ungmenna í lok ágúst, samkvæmt rann­sakanda og lögreglu­fulltrúa hjá Lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu, Ásdísi Haralds.

Þrjú létust í slysinu, ökumaðurinn, fæddur 2005, og tvær ungar konur fæddar 2007 og 2009. Slysið varð á Krýsuvíkur­vegi við Bláfjalla­afleggjarann, þar sem ökumaður virðist hafa misst stjórn á bifreið sinni og hafnað á kletti í vegkanti við beygju sem tók við af blindhæð.

Myndbönd í dreifingu

Heimildin hefur greint frá því að myndbönd tengd slysinu hafi verið í umferð, annars vegar örstutt myndbrot sem sýnir bifreiðina í ljósum logum og hins vegar upplýsingar úr svokölluðu Life360 appi. 

Í því appi sést tölvugerð lína sem sýnir jafnframt að bifreiðin hafi verið á um 230 kílómetra hraða. Upplýsingum varðandi hraðann þarf þó að taka með fyrirvara. Hámarks­hraði á veginum er 70 kíló­metrar.

Lögreglan segist ekki …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Slysið á Krýsuvíkurvegi

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár