Kennari á hátekjum: „Hef verið að halda vel utan um mitt“

Skóg­ræktar- og ferða­þjón­ustu­bónd­inn og kenn­ar­inn, Jóhanna Halldóra Sig­urð­ar­dóttir, situr í þriðja sæti hátekju­list­ans á Vest­ur­landi. „Þetta kemur mér veru­lega á óvart. Það eru margir stór­laxar á svæð­inu,“ segir hún. Jóhanna vill helst að skattar hennar fari í mál­efni fatl­aðra og betri vegi í Dala­byggð.

Kennari á hátekjum: „Hef verið að halda vel utan um mitt“
Drangar Fjöl­skyldan rekur Drangar Country Guesthouse á Skóg­ar­strönd. Mynd: Booking.com

„Þetta kemur mér veru­lega á óvart. Það eru margir stór­laxar á svæð­inu,“ segir Jóhanna Halldóra Sig­urð­ar­dóttir, skóg­ræktar- og ferða­þjón­ustu­bóndi á Dröngum og fyrrum kenn­ari og skóla­stjóri, þegar blaða­maður færir henni þær fregnir að hún sé þriðji tekju­hæsti ein­stak­lingur á Vest­ur­landi.

Jóhanna er með heild­ar­árs­tekjur upp á 329.777.958 krónur og er í 95. sæti á lands­vísu. Tekj­urnar eru mest­megnis til­komnar vegna fjár­magnstekna. Í fyrra var Jóhanna einnig á list­anum en þá í 367. sæti með heild­ar­árs­tekjur upp á 121.586.076 krónur. „Bókarinn okkar var ekk­ert búinn að tala neitt um þetta,“ segir hún um nýj­ustu töl­urnar. Jóhanna trónir á toppi list­ans í Dala­byggð sem kemur henni tölu­vert minna á óvart þar sem hún segir að um bænda­sam­fé­lag sé að ræða. 

Spurð út í ástæður þess­ara háu tekna segir Jóhanna að þau hjónin hafi selt hlut í fyr­ir­tæki á árum áður en vildi ekki ræða málið nánar. „Ég er nú bara …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu