„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“

Þóra Jakobína Ol­sen Hrafns­dótt­ir fékk spurn­ingu sem hún gat ekki svar­að, fór heim og íhug­aði svar­ið. Í kjöl­far­ið breytti líf henn­ar um stefnu.

„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“

Vorið 2002 sat ég við símavörslu hjá Já.is í húsnæði Pósts og síma á Akureyri. 

Við næsta borð sat systir mín sem er sjö árum eldri en ég, fráskilin með tvo drengi á framfæri – sama staða og ég var sjálf í. Við vorum á morgunvakt og það var lítið að gera en samt nóg til að trufla samtal ef við reyndum að tala saman, svo við sátum þegjandi milli símtala. 

Ég var að ljúka símsvari þegar systir mín teygði sig yfir lyklaborðið hjá mér og ýtti á blokkun sem lokaði borðinu hjá mér. Ég leit við og sá að hún hafði blokkað sitt borð líka.

Hún horfði á mig spurnaraugum og spurði: „Ert þú ekki með iðnskólagráðu?“

„Jú,“ svaraði ég.

„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi við hliðina á mér sem hef enga menntun?“

Ég gat engu svarað, fór heim og íhugaði spurninguna með sjálfri mér og fór af stað að finna út mína möguleika. Á Akureyri var ekki mikið um valmöguleika svo ég fór að hugsa út fyrir Akureyri og mögulega búsetu annars staðar.

Ég endaði á að fá mér vinnu á leikskóla þar sem ég hafði áður verið skólaliði í grunnskóla og þekkti skólastarfið.

Ég vann í eitt ár á leikskólanum og skráði mig svo hjá Háskólanum á Akureyri í grunnskólakennaranám en mér leist betur á það en leikskólakennarann.

Eftir útskrift á Akureyri hef ég bætt við mig mun meira námi við Háskóla Íslands og starfað í grunnskólum á Akureyri og í Reykjavík nú í yfir 20 ár. Og þvílíkur heiður að fá að starfa með unga fólkinu okkar alla daga.

Ég hugsa oft til systur minnar með kærleika og þakklæti fyrir spurninguna og að hafa ýtt við mér.

Kjósa
55
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum
4
InnlentNiðurstöður PISA

Reykja­vík yf­ir lands­með­al­tali í PISA en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um svið­um

Mennta­mála­ráðu­neyt­ið hef­ur birt nið­ur­brot á nið­ur­stöð­um PISA eft­ir sveit­ar­fé­lög­um. Mun­ur á frammi­stöðu nem­enda í stærstu sveit­ar­fé­lög­um lands­ins minnk­ar þeg­ar tek­ið er til­lit til bak­grunns þeirra. Reykja­vík helst þó yf­ir lands­með­al­tali í vís­ind­um, stærð­fræðilæsi og lesskiln­ingi en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um þrem­ur svið­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
2
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár