„Sárið er enn opið“ 36 árum eftir að hún fæddi andvana barn

Dagbjört Skafta­dóttir var tví­tug þegar hún fæddi and­vana stúlku eftir sjö mán­aða með­göngu, eftir að hafa fengið með­göngu­eitrun. Viku fyrr hafði hún látið vita að hreyf­ing­arnar væru minni en það var ekki athugað.

„Sárið er enn opið“ 36 árum eftir að hún fæddi andvana barn

„Þetta er reynsla sem lifir alltaf með mér. Nú eru 36 ár liðin og sárið er enn jafn­opið, þótt það sé filma yfir því. 

Hjálpin sem við for­eldr­arnir fengum var 15 mín­útna sam­tal við prest. Svo sagði fólk setn­ingar á borð við: „Þið eruð nú ung og getið reynt aftur“ og „lík­urnar á að þetta komi fyrir aftur eru litlar sem engar“. Það gerir mig enn reiða. Ég get ekki eign­ast þetta barn aftur, barnið sem ég var að syrgja. 

Tvisvar sinnum gekk ég aftur í gegnum með­göngu­eitrun, en vissi hvað var að ger­ast svo hægt var að grípa inn. Börnin fædd­ust fyrir tím­ann. Sonur minn var sjö merkur og dóttir mín þrjár merkur. 

„Hvernig á lífið að verða ánægju­legt ef það er aldrei erfitt?“

Þessi reynsla gerir það að verkum að ég á enn eftir að óska verð­andi móður til ham­ingju. Mín hugsun er alltaf: Þetta er ekki alveg komið, þótt barn sé komið undir. 

Enn reyni ég að taka tíma á fæð­ing­ar­degi hennar þar sem ég sit og hugsa um hana. Við pabbi hennar erum skilin en þessa sorg finnst mér ég eiga með honum og á erfitt með að hleypa fleirum inn í þessar til­finn­ingar. 

Ríkidæmi mitt er mikið en barna­börnin eru fjögur. Sonur minn heiðr­aði minn­ingu systur sinnar með því að skíra frum­burð­inn í höf­uðið á henni. Ég varð inni­lega glöð. Nýlega hlust­aði ég á lag með text­anum: Hvernig á lífið að verða ánægju­legt ef það er aldrei erfitt? Það er lær­dómur sem ég hef dregið af mínum brekkum, að horfa frekar á það jákvæða sem ég er svo heppin að hafa í líf­inu.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár