Þurfti að æfa glímu í stað fimleika

Guðný Helga Sæmundsen segir sveita­lífið hafa mótað sig mest. Þar hafi einfald­leiki lífsins orðið til þess að hún gat valið á milli glímu og fótbolta.

Guðný Helga Sæmundsen
Guðný Helga Sæmund­sen Er að læra ferða­mála­fræði og æfði glímu sem barn.

„Ég held að það sem hafi mótað mig mest sé að búa úti á landi, eða alast upp úti á landi. Ég er frá Bláskóga­byggð og bý við Gullna hringinn. Núna er ég að læra ferðamála­fræði, þannig að bara tengslin við náttúruna og ferða­manninn hafa örugglega mótað mig mest.

Mér finnst svo gaman að tala við ferðamenn og kynna Ísland fyrir ferða­fólki. Þannig reyni ég að hafa allt sem ég segi við ferða­mennina rétt og satt og leiðrétta þær villur sem þeir hafa kannski heyrt. En ég held að það að búa úti á landi sé það besta við líf mitt. Ég mun flytja þangað aftur seinna. Ég bý núna í borginni og er nemi, ég er að læra ferðamála­fræði og er matar­leið­sögumaður. Seinna mun ég líklegast flytja aftur í sveitina.

Helsti munurinn er kannski að maður þurfti að finna sér eitthvað að gera. Bara sem dæmi, félags­miðstöðin …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár