„Þakklát fyrir öll mín forréttindi“

Þeg­ar Mar­grét Ísaks­dótt­ir flutti frá Hvera­gerði ákvað hún að njóta menn­ing­ar­lífs­ins í borg­inni.

„Þakklát fyrir öll mín forréttindi“

„Á  síðasta ári fluttist ég frá Hveragerði og á  höfuðborgarsvæðið sem voru viðbrigði. En mig langaði að vera nær dóttur minni og dóttursyni og taka þátt í þeirra daglega lífi en ekki bara hátíðarstundum. Ég ákvað strax að þetta yrði heillaskref hjá mér og eitt af því sem hefur heillað mig við borgarlífið er hversu auðvelt er að stunda leikhúsin.
Þegar ég var að alast upp stóð mamma mín heitin fyrir leikhúsferðum kvenfélagskvenna. Þá voru keypt árskort til að sjá sem flestar sýningar. Ég var svo heppin að ég fékk oft að fara með, en það kom fyrir að við komumst ekki vegna veðurs eða ófærðar. Ég á margar minningar frá þessum ferðum sem myndu kallast svaðilfarir í dag, þegar verið var að berjast yfir heiðina í snarvitlausu veðri. Í minningunni var heiðin ekki oft lokuð en vonandi erum við skynsamari í dag.  

„Það er alltaf val hvernig þú …
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
2
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár