Bandarískur dómari stöðvar fjölmiðlabann Hvíta hússins

Bandarískur alríkis­dómari hefur fyrir­skipað Trump-stjórninni að hleypa frétta­mönnum CNN, MS NOW og Politico aftur inn í Hvíta húsið. Dómarinn telur að aftur­köllun blaðamanna­skírteina þeirra hafi líklega brotið gegn stjórnar­skrár­vörðum rétti þeirra.

Falsfréttir
Fals­fréttir Donald Trump hefur sakað fjölda fjöl­miðla um að flytja fals­fréttir þegar honum hugn­ast ekki frétta­flutn­ingur þeirra. Mynd: AFP

Trump-stjórnin verður þegar í stað að veita CNN, MS NOW og Politico aðgang að Hvíta húsinu á ný, samkvæmt úrskurði bandarísks alríkis­dómara, eftir að frétta­mönnum miðlanna hafði verið meinaður aðgangur að húsinu.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur um árabil ráðist gegn fjöl­miðlum sem hafa fjallað með gagnrýnum hætti um kosninga­baráttu hans og ríkis­stjórnir og ítrekað kallað fjölmiðla „óvini fólksins“. 

Milljarðamæringurinn og fyrr­verandi raun­veruleika­sjónvarps­stjarnan meinaði miðlunum þremur aðgang að Hvíta húsinu á föstudag í refsiskyni fyrir að hafa dreift því sem hann kallaði „fals­fréttir“ og „skáldskap og lygar“.

Theodore Boutrous, lögmaður miðlanna, sagði við AFP á fimmtudag að „þetta sé afdráttar­laus úrskurður sem staðfesti mikilvægi fjölmiðla­frelsis, rétt­látrar máls­meðferðar og réttar­ríkisins. Við kunnum dómstólnum miklar þakkir fyrir skjót viðbrögð.“

CNN, MS NOW og Politico höfðuðu sameiginlega málssókn og fóru fram á tíma­bundið lögbann við ákvörðuninni á þeirri forsendu að hún bryti gegn fyrsta viðauka bandarísku stjórnar­skrárinnar, sem …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár