Musk snýr aftur í formlegt ráðgjafarhlutverk hjá Trump

Varn­ar­mála­ráðu­neytið segir Elon Musk stýra Project Meridian ásamt Palmer Luckey og Newt Gingrich. Þeir eiga að rann­saka fram­tíð hern­aðar. Nið­ur­stöður þeirra eiga að liggja fyrir innan 120 daga.

Musk snýr aftur í formlegt ráðgjafarhlutverk hjá Trump
Snúinn aftur Musk leiddi hag­ræð­ing­ar­deild banda­rískra stjórn­valda þar til hann lét af störfum í maí á síð­asta ári. Nú er hann snú­inn aftur sem ráð­gjafi Trump-stjórn­ar­innar. Mynd: AFP

Tækni­m­illj­arða­mær­ing­ur­inn Elon Musk mun á ný gegna form­legu ráð­gjaf­ar­hlut­verki fyrir rík­is­stjórn Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta. Hann verður annar tveggja stjórn­enda rann­sóknar á fram­tíð hern­aðar, að sögn varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Musk stýrði hag­ræð­ing­ar­deild stjórn­valda (DOGE) þar til hann lét af störfum í maí 2025, eftir að opin­ber­lega kastað­ist í kekki milli hans og Trump.

Í ræðu í Quantico-her­stöð­inni sagði Pete Hegseth, varn­ar­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, að „Project Meridian“ yrði „verk­efni þar sem fremstu sér­fræð­ingar Banda­ríkj­anna rann­saka fram­tíð hern­aðar“.

„Við nýtum okkur ein­stakt for­skot Banda­ríkj­anna sem and­stæð­ingar okkar hafa ekki: frum­kvöðla okkar, æðstu stjórn­endur og tækni­sér­fræð­inga,“ sagði Hegseth.

Musk mun stýra Project Meridian ásamt Palmer Luckey, 34 ára gömlum með­stofn­anda varn­ar­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Anduril Industries, og Newt Gingrich, 83 ára gömlum repúblik­ana og fyrr­ver­andi for­seta full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings.

Musk studdi Trump og hjálp­aði honum að kom­ast aftur í Hvíta húsið, en síðar lentu þeir í opin­berum deilum vegna útgjalda­frum­varps for­set­ans.

Síðar hóf Musk aftur að styrkja repúblik­ana, meðal ann­ars …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Þarna mun andskotinn hitta ömmu sína, enn einu sinni.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár