Andersson fær annað tækifæri til stjórnarmyndunar

Andreas Norlen þing­for­seti hefur falið Magda­lenu And­ers­son, leið­toga jafn­að­ar­manna, að halda áfram við­ræðum eftir að fyrri til­raun hennar mistókst. Hún á að gera honum grein fyrir stöð­unni fyrir 12. októ­ber.

Reynir aftur
Reynir aftur Magda­lena reyndi án árang­urs að mynda stjórn eftir nauman sigur vinstri­blokk­ar­innar í nýaf­stöðnum þing­kosn­ingum. Nú á hún að reyna aftur. Mynd: JONATHAN NACKSTRAND / AFP

Forseti sænska þings­ins sagði á föstu­dag að hann hefði falið Magda­lenu And­ers­son, leið­toga jafn­að­ar­manna, að reyna á ný að mynda rík­is­stjórn. Fyrri til­raun hennar hafði farið út um þúfur nokkrum dögum áður.

Andreas Norlen sagði að And­ers­son ætti að gera honum grein fyrir stöð­unni fyrir 12. októ­ber.

„Á grund­velli þeirra sam­tala sem ég hef átt hef ég ákveðið að fela Magda­lenu And­ers­son, leið­toga Jafn­að­ar­manna­flokks­ins, að halda áfram könn­un­ar­við­ræðum um stjórn­ar­myndun,“ sagði Norlen á blaða­manna­fundi.

Miðju- og vinstri­flokk­arnir í stjórn­ar­and­stöðu fengu 176 þing­sæti í kosn­ing­unum 13. sept­em­ber, en hægri­flokk­arnir undir for­ystu Ulfs Kristers­son, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, fengu 173. Sví­þjóð­ar­demókrat­arnir, sem eru and­vígir inn­flytj­endum, eru í hópi hægri­flokk­anna.

Norlen fól And­ers­son fyrst að hefja stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður 18. sept­em­ber. Hún gafst upp 28. sept­em­ber eftir að henni tókst ekki að sam­eina hina þrjá flokk­ana í sínum hópi vegna djúp­stæðs hug­mynda­fræði­legs ágrein­ings.

„Ég get full­yrt að grund­vall­ar­for­sendur stjórn­mál­anna og …
Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár