Trump ræddi við Bjarna um Ísland sem 51. ríki Bandaríkjanna

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti brydd­aði upp á því í sím­tali við Bjarna Bene­dikts­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í nóv­em­ber 2024 hvort Ísland ætti að verða 51. ríki Banda­ríkj­anna.

Trump ræddi við Bjarna um Ísland sem 51. ríki Bandaríkjanna

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti brydd­aði upp á því í sím­tali við Bjarna Bene­dikts­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í nóv­em­ber 2024 hvort Ísland ætti að verða 51. ríki Banda­ríkj­anna. RÚV greinir frá þessu í dag. Heim­ildin hefur rætt við ein­stak­ling innan stjórn­kerf­is­ins sem stað­festir efni sím­tals­ins.

Símtalið átti sér stað 26. nóv­em­ber 2024, fjórum dögum fyrir alþing­is­kosn­ingar. Trump hafði þá skömmu áður verið kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna á ný en hafði ekki tekið við emb­ætti.

RÚV hefur eftir nokkrum heim­ild­ar­mönnum, sem séð hafa minn­is­blað um sam­talið, að Trump hafi snemma í sím­tal­inu rætt áhuga vina og vanda­manna sinna á Íslandi. Hann hafi síðan sagt, í gam­an­sömum tón, að stundum hefði verið rætt um að Ísland yrði 51. ríki Banda­ríkj­anna.

Bjarni hafi gefið lítið fyrir hug­mynd­ina og tekið henni sem léttu gríni. Trump hafi hins vegar gripið fram í og hvatt Bjarna til að hugsa málið vel að loknum kosn­inga­sigri, sam­kvæmt frá­sögn RÚV.

Símtalið fór ekki fram eftir hefð­bundnum opin­berum boð­leiðum og hvorki er til upp­taka né form­legt end­ur­rit af því. Alþjóða­full­trúi for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins hlust­aði hins vegar á sam­talið og skrif­aði minnis­p­unkta, sam­kvæmt upp­lýs­ingum bæði RÚV og Heim­ild­ar­innar.

Í opin­berri til­kynn­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins dag­inn eftir sím­talið var ekki minnst á ummæli Trumps um Ísland sem mögu­legt ríki Banda­ríkj­anna. Þar sagði þess í stað að Trump hefði sýnt Íslandi mik­inn áhuga, meðal ann­ars sem ferða­manna­stað, og verið áhuga­samur um sögu og menn­ingu þjóð­ar­innar.

RÚV óskaði eftir minn­is­blað­inu frá for­sætis- og utan­rík­is­ráðu­neyt­unum en afhend­ingu þess var hafnað. Utan­rík­is­ráðu­neytið sagði birt­ingu þess geta skaðað trún­að­ar­sam­band Íslands við erlent ríki og þar með hags­muni íslenska rík­is­ins.

Frá­sögnin kemur fram nokkrum dögum eftir að Trump birti mynd á sam­fé­lags­miðli sínum þar sem meðal ann­ars Ísland og Grænland voru sýnd undir banda­ríska fán­anum. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra kall­aði sendi­herra Banda­ríkj­anna á Íslandi á fund í kjöl­farið og sagði færsl­una óvið­eig­andi.

Trump hefur áður viðrað hug­myndir um yfir­ráð Banda­ríkj­anna yfir öðrum land­svæðum. Hann hefur ítrekað rætt um Grænland og einnig sagt að Kanada gæti orðið 51. ríki Banda­ríkj­anna. Hann hefur birt kort af lönd­unum þar sem þau eru þakin banda­ríska fán­anum. Það sama hefur hann gert með Venes­ú­ela, en í árs­byrjun lét Trump ráð­ast inn í landið og ræna for­seta lands­ins, í því skyni meðal ann­ars að ná for­ræði yfir olíu­auð­lindum lands­ins.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Þeir Bjarni og Donald eru dæmi um menn sem hafa unnið of mörg skallaeinvígi.
    1
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Af hverju ætli Bjarni hafi logið um símtalið. Ætli geti verið að hann hafi eitthvað óhreint í pokahorninu?
    1
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Ég hefði svarað í sömu mynt og upplýst hann um að þar sem Ísland er ekki í Ameríku þá þyrfti hann að breyta nafninu á sameinuðu landi í Bandaríki Norður-Ameríku og ÍSLANDS! :D
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár