Trump þekur Ísland með bandaríska fánanum

Bandaríkja­forseti hefur áður merkt Venesúela, Grænland og Kanada með fánanum, til að undir­strika að löndin heyri undir bandarískt svæði.

Merking Trumps
Merking Trumps Mynd: truthsocial / Donald J. Trump

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur þakið Ísland með bandaríska fánanum í nýrri færslu á samfélags­miðli sínum, Truth Social. Trump hefur áður gert það sama með Venesúela og Grænland.

Í færslunni sést Grænland, Kanada, Mexíkó og Kúba, meðal annarra ríkja, þakið fánanum. 

Eftir að Trump merki Venesúela fánanum réðst hann inn í landið og lét handataka forseta þess, Niculas Maduro, í byrjun janúar. 

Skömmu síðar birti eiginkona Stephens Miller, hægri handar Trumps,mynd af Grænlandi undir bandaríska fánanum. Eftir það tvíefldist Trump í tilraunum til að komast yfir Grænland og innlima það í Banda­ríkin.

Trump hefur lagt fram svokallaða „Donroe-kenningu“, sem byggir á Monroe-kenningunni frá 19. öld, um að nágranna­ríki heyri undir áhrifa­svið Banda­ríkjanna en ekki Evrópu. Nú virðist hann hafa skilgreint Ísland meðal þeirra.

Íslendingar höfnuðu því í lok síðasta mánaðar að hefja aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið, en Trump hefur ekki tjáð sig um niður­stöðuna.

Trump stefnir opinber­lega að stjórnar­skiptum á Kúbu og hefur ekki útilokað innrás í eyjuna.

Ísland er með tvíhliða varnar­samning við Banda­ríkin sem veitir þeim réttindi til viðbúnaðar hér á landi.

Samningurinn var uppfærður í tíð Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar utan­ríkis­ráðherra, án opinberrar umræðu.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Greg Hill skrifaði
    Stærsti veikleiki þeirra (Trump og félaga) er að þeir eru hliðstæður fíkniefnaneytenda sem eru alltaf að leita að betri vímu. Bætið þessari ögrun á Íslandi við sívaxandi listann (hér í Bandaríkjunum er „Nýja Mexíkó“ að fá nafnið „Nýja Ameríka“). Rétt eins og með fíkniefnafíkn er þetta ekki spurning um hvort þetta muni allt hrynja, heldur hvenær – og hvaða afleiðingar slíkra mistaka verða um allan heim.
    0
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Við þurfum að hafa það í huga að þar sem við höfum afsalað hluta fullveldisins til USA með því að fela þeim algerlega varnir landsins þá er ekki óeðlilegt að margir þar líta á Ísland sem verndarsvæði Bandaríkjanna (protectorate) og því ætti þetta ekki að vera svo mikið undrunarefni.
    0
    • MS
      Michael Schulz skrifaði
      You are absolutely right. It's a document worth reading:
      "Agreement Between the
      UNITED STATES OF AMERICA
      and ICELAND
      Effected by Exchange of Notes at
      Reykjavik October 13 and 17, 2017"
      0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Trump er ekki að grínast, hann hefur enga kímnigáfu svo vitað sé.
    1
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Þau virðast bæði þurfa að læra að lesa (rétt) landakort. Þ.e.a.s. Donald og Ursula.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár