Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðgun við Íslendinga“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra segir færslu Donald Trump, þar sem Ísland var sýnt undir banda­ríska fán­anum, algjör­lega óvið­eig­andi. Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir und­ir­tón færsl­unnar fárán­legan og hana móðgun við Íslend­inga, Kanada­menn og Græn­lend­inga. Banda­ríski sendi­herr­ann var kall­aður á fund vegna máls­ins.

Kristrún um Trump: „Þetta er bara móðgun við Íslendinga“

„Þetta er ekki grín að mínu mati. Og ef þetta á að vera grín þá er þetta lélegt grín,“ sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra um sam­fé­lags­miðla­færslu Donald Trump Banda­ríkja­for­seta þar sem Ísland, og fleiri lönd eins og Grænland og Kanada, var sýnt undir banda­ríska fán­anum.

Banda­ríski sendi­herr­ann á Íslandi var kall­aður á fund utan­rík­is­ráð­herra vegna færsl­unnar. Þor­gerður sagði á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar að honum hefðu verið færð skýr skila­boð um að færslan væri „algjör­lega óvið­eig­andi“.

„Mér hefur verið bent á, meðal ann­ars ítrekað innan úr banda­rískri stjórn­sýslu, að við eigum kannski ekki að taka núver­andi Banda­ríkja­for­seta bók­staf­lega en við eigum að taka honum alvar­lega. Og það er nákvæm­lega það sem við erum að gera,“ sagði Þor­gerður.

Hún sagði Ísland full­valda og sjálf­stætt ríki sem réði sjálft sínum örlögum. „Það eru ekki aðrir sem geta höndlað með okkar sjálf­stæði eða full­veldi. Við gerum það á okkar for­sendum.“

„Móðgun við Íslendinga“

Kristrún …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár