Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldahækkanir fylgdu verðbólgumarkmiði

Fjár­mála­ráðu­neytið metur tekju­tap ef gjalda­hækk­anir verða tak­mark­aðar við verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans vera 1,6 millj­arða króna. Engin ákvörðun hefur verið tekin en Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir rík­is­stjórn­ina reiðu­búna að tak­marka hækk­anir við 2,5 pró­sent ef aðrir leggi sitt af mörkum og kjara­samn­ingar haldi.

Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldahækkanir fylgdu verðbólgumarkmiði
Glöð Það var mikil gleði hjá for­ystu­fólki rík­is­stjórn­ar­innar þegar Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra kynnti fyrstu halla­lausu fjár­lög rík­is­ins síðan 2018. Mynd: Golli

Afkoma rík­is­sjóðs myndi versna um 1,6 millj­arða króna ef dregið yrði úr fyr­ir­hug­uðum gjalda­hækk­unum rík­is­ins. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um áhrif þess að tak­marka hækk­an­irnar við 2,5 pró­senta verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans. 

Fjár­laga­frum­varp næsta árs gerir ráð fyrir 4,7 millj­arða króna afgangi. Minni gjalda­hækk­anir myndu því, að öðru óbreyttu, lækka afgang­inn í 3,1 millj­arð króna. Rúmur þriðj­ungur áætl­aðs afgangs myndi þannig hverfa.

„Ef til lækk­unar kæmi má gera ráð fyrir að gjöldin lækki um 1,6 millj­arð og afkoma rík­is­sjóðs myndi þá versna sem því næmi,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Háð því að samningar haldi

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði á árs­fundi Samtaka atvinnu­lífs­ins í Hörpu í gær að rík­is­stjórnin væri reiðu­búin að tak­marka hækk­anir almennra krónu­tölu­gjalda og gjald­skráa rík­is­stofn­ana við 2,5 pró­sent. Jafn­framt yrði til­mælum beint til fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins.

Hún tengdi það þó …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár