Halli ríkissjóðs jókst um tíu milljarða milli ára

Halli hins op­in­bera var meiri á öðr­um árs­fjórð­ungi en á sama tíma í fyrra, sam­kvæmt nýj­um töl­um Hag­stof­unn­ar. Af­koma rík­is­sjóðs verð­ur mun verri í ár en gert var ráð fyr­ir þeg­ar fjár­lög voru sam­þykkt. Rík­is­stjórn­in ætl­ar engu að síð­ur að snúa hall­an­um í um fimm millj­arða af­gang strax á næsta ári.

Halli ríkissjóðs jókst um tíu milljarða milli ára
Plús Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti hallalaust fjárlagafrumvarp við upphaf þings. Það má þó lítið út af bregða til að það gangi eftir. Mynd: Golli

Afkoma hins opinbera versnaði á öðrum ársfjórðungi ársins. Hallinn nam 48,3 milljörðum króna, eða 3,8 prósentum af landsframleiðslu fjórðungsins, samkvæmt nýjum bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Á sama tíma í fyrra nam hallinn 3,0 prósentum af landsframleiðslu.

Ríkissjóður einn var rekinn með 37,5 milljarða króna halla á fjórðungnum, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Hallinn hafði aukist um tæpa tíu milljarða frá sama tíma í fyrra, þegar hann var 27,7 milljarðar. 

-49,9
milljarða
halli á rekstri ríkisins fyrstu sex mánuði ársins

Tekjur ríkissjóðs námu 378,4 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi og jukust um þrjú prósent frá sama tíma í fyrra. Útgjöldin jukust hins vegar um 5,3 prósent, úr 395,2 milljörðum í 416 milljarða króna.

Á fyrri helmingi ársins var ríkissjóður þar með rekinn með 49,9 milljarða króna halla, samanborið við 43,5 milljarða á sama tímabili í fyrra. Hallinn hefur því aukist um tæp 15 prósent milli ára. Hagstofan tekur fram að ársfjórðungstölurnar séu áætlanir sem …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjárlög 2027

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
3
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár