Daði segir framúrkeyrslu ríkisins hafa minnkað

Guðrún Haf­steins­dóttir gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina fyrir að hafa brugð­ist of seint við halla­rekstri rík­is­sjóðs. Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra hafn­aði gagn­rýn­inni og sagði fram­kvæmd fjár­laga hafa batnað á kjör­tíma­bil­inu.

Hallalaus
Halla­laus Daði hefur lagt fram halla­laus fjár­lög en ljóst er að það þarf lítið sem ekk­ert að fara úrskeiðis eða breyt­ast til að það klikki. Mynd: Golli

Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir fram­úr­keyrslu í rík­is­rekstri hafa minnkað í tíð núver­andi rík­is­stjórnar og hafnar gagn­rýni Guðrúnar Haf­steins­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um að rík­is­stjórnin hafi látið hjá líða að beita nægi­legu aðhaldi í rík­is­fjár­málum. 

Guðrún beindi óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn til Daða á Alþingi í dag og gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina fyrir að vísa ítrekað til útgjalda fyrri rík­is­stjórnar þegar halla­rekstur rík­is­sjóðs væri ræddur. Hún sagði núver­andi rík­is­stjórn sjálfa hafa aukið hall­ann og spurði hvers vegna ekki hefði verið gripið fyrr til aðhalds.

„Hvers vegna var ekki strax haf­ist handa við aðhald í rík­is­fjár­mál­unum þannig að verð­bólgan gæti haldið áfram að þok­ast nær mark­miði og vextir haldið áfram að lækka?“ spurði Guðrún.

Hún sagði upp­haf­lega hafa verið stefnt að mun minni halla á þessu ári en nú blasir við. „Hvers vegna lætur rík­is­stjórnin hjá líða …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjárlög 2027

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár